Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Kosningar
Lesendarýni 29. nóvember 2024

Kosningar

Höfundur: Guðrún Kr. Jóhannsdóttir, viðskiptafræðingur í Suðurkjördæmi.

Kæru kjósendur. Það er ekkert mikilvægara en að nýta atkvæðisréttinn sem svo mikið var haft fyrir fyrr á árum af framsýnum mönnum að gefa okkur öllum. Það er líkast til betra að kjósa vitlaust en kjósa ekki.

Guðrún Kr. Jóhannsdóttir

Það er staðreynd að það er gott fólk og velhugsandi í öllum flokkum, en aðalatriðin eru það sem fólk sameinast um í hverjum þeirra. Landið okkar virðist vera í krísu efnahagslega, mest vegna stjórnleysis undanfarin sjö ár. Ríkissjóður hriplekur og hælisleitendur fá betri kjör en þeir Íslendingar sem minnst hafa milli handanna. Hugum að umheiminum og hjálpum til þar sem þessi litla þjóð getur, en látum okkar eigið fólk okkar ganga fyrir sem býr við bág kjör eða jafnvel á götunni. Taktu til heima hjá þér og hjálpaðu svo öðrum í neyð. Allir okkar innviðir virðast hrundir, ekki hvað síst heilbrigðis og samgöngukerfið. Það þarf mikla uppstokkun til að koma öllu í lag og ekki síst hjá ríkisstofnunum sem eru orðin að bákni sem stöðugt vex.

Ég hef fylgst með skoðanakönnunum, og það sem hræðir mig mest er þetta aukna fylgi Viðreisnar! Það er áhyggjuefni. ESB innganga og evra er ekki það sem við þurfum, enda var það krónan sem bjargaði okkur í hruninu. Mörgum hefur verið talin trú um að slík innganga myndi breyta vaxtastigi og verðtryggingu hér á landi og allir myndu hafa það betra. Þvílíkur blekkingarleikur.

Fyrir ca. 12 árum fékk ég sem sveitarstjórnarfulltrúi vestur á landi boð um kynningu á ESB og koma til Brussel og kynna mér málin. Ég var ekkert spennt, en fór með tilfinningu, en kom heim með rök.

Í stuttu máli sagt, ef einhver er að tengja ESB aðild við vinstrimennsku, þá er það regin misskilningur. Þetta er það kapítalískasta batterý sem fyrirfinnst. Hreinn lobbý-ismi stórfyrirtækja með þingmenn í vinnu. Enda byggt upp úr gamla þýska stál- og kolabandalaginu „Ef þú klórar mér, þá klóra ég þér“. Erfitt að lýsa þessu apparati í styttra máli. Þessi hópur sem fór út, var u.þ.b. 25 manns, flest Samfylkingarfólk úr Reykjavík og einn og einn af landsbyggðinni úr misjöfnum flokkum og vorum því kannski svolítið sér á báti sem andstæðingar ESB. En við hlustuðum, fengum góðar þýðingar á ensku og kynningar á áhrif hinna ýmsu atvinnugreina. Sannleikurinn er sá, að fiskimiðin okkar færu til úthlutunar til Spánverja, Portúgala og fl. Orkan okkar færi til Evrópu með auknum kostnaði fyrir alla venjulega Íslendinga, þar sem ekki má mismuna milli þjóða. Hvað landbúnaðinn varðar, þá fengju landeigendur styrkina en þeir sem yrkja jörðina bara afrakstur sinnar eigin vinnu. Sjá má fyrir sér hvaða áhrif það hefði.

Erlendir auðjöfrar og uppkaup á jörðum eru orðin að raunveruleika. Landbúnaðurinn okkar á nógu erfitt nú þegar, ekki hvað síst sauðfjárbúin.

Það eru tvenns konar þjóðir í ESB. Þeir sem borga og þeir sem þiggja. Brexit varð til af því þeir tilheyrðu alltaf fyrri hópnum eins og við myndum gera, þar sem við eigum auðlindir.
Þarna starfa fjölmargir lobbíistar fyrir ýmis stórfyrirtæki og jafnvel mörg fyrirtæki í einu til að ná sínum hagsmunum í gegn.

Ég skil lönd eins og Pólland, Ungverjaland og fl. að vera þarna, landamæratengd lönd, en við erum svo heppin að vera eyland langt í vestri sem þurfum þetta ekki.

Kæri kjósandi. Mundu hrunið og alla sem misstu heimilin sín. Við eigum kost á besta „krísustjórnandanum sem kom skuldaleiðréttingunni í gegn“, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Maður sem beitir skynsemishyggju, hugsar í lausnum og hikar ekki við að leita bestu lausna við hverjum vanda. Hann hefur vaska sveit með sér í öllum kjördæmum, tilbúna í slaginn.

Hvað sem þú gerir á kjördag, kjósandi góður, þá aldrei kjósa Viðreisn og ekki skila auðu. Ég kýs Miðflokkinn, því ég veit hvers þeir eru megnugir, fái þeir tækifæri til.

Settu X-ið þitt við M á kjördag og sameinumst um að bæta kjör venjulegs fólks og þeirra sem minna mega sín.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.