Kornþresking á Klauf í september.
Kornþresking á Klauf í september.
Mynd / Hermann Ingi Gunnarsson
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við höfum eiginlega ekki undan þó afköstin séu mikil,“ segir kampakátur Hermann Ingi Gunnarsson, bóndi í Klauf og forsvarsmaður Kornskemmunnar. Kornskemman tekur við korni til þurrkunar, geymslu og sölu en félagið hefur gert samning við Bústólpa um kaup á korni til vinnslu í fóður.

Hermann Ingi Gunnarsson.

Í aðgerðaáætluninni Bleikum ökrum, sem unnin var af Landbúnaðarháskólanum árið 2023 í tengslum við kornræktarátak stjórnvalda, kemur fram að kaupendur hafi ekki yfirlit yfir magn, gæði og verð íslenskrar kornuppskeru. Viðskipti séu því lítil og stofna þurfi kornsamlög. Helgi Eyleifur Þorvaldsson, aðjunkt og brautarstjóri Ræktunar og fæðu hjá LbhÍ og einn þeirra sem skrifaði Bleiku akrana, fagnar auglýsingu eyfirsku bændanna og segir kornræktarátakið þegar vera að skila sér.

Gætum margfaldað kornrækt

„Ef við vildum þá gætum við margfaldað kornrækt,“ segir Hermann. Hann segir aðstæður í Eyjafirði gríðarlega góðar til kornræktar og mikla grósku í kjölfar byggingar Kornskemmunnar.

Þar er færibandaþurrkari, knúinn jarðvarma sem getur afkastað yfir 100 tonnum á sólarhring og tvö síló. Kornskemman er rekin af nokkrum bændum og staðsett við Laugaland í Eyjafjarðarsveit. Hermann segir Bústólpa hafa staðið vel á bak við Kornskemmuna og eiga stóran þátt í góðu gengi.

„Þegar skýrslan [Bleikir akrar] kom út fannst manni þetta galnar hugmyndir að byggja þrjár, fjórar þúsund tonna þurrkstöðvar,“ segir Hermann. „Við vonumst eftir að fá um 1500 tonn inn núna. Þetta er mikil fjárfesting en mikið hagræði.“

Hið eiginlega fæðuöryggi

Helgi Eyleifur segir hagræði í því að safna korni frá fleiri framleiðendum, það auðveldi samningagerð og auki þegar fram í sækir aðgengi áhugasamra kaupenda. Hann segir fleiri stöðvar sem þegar hafa risið örugglega eiga eftir að stækka á komandi árum. „Þetta er allt á réttri leið.“

Hermann segir óvissu ríkja varðandi verð á innfluttu kjarnfóðri. „Maður heyrir að lokun Hormússundsins hafi áframhaldandi áhrif á olíuverð og áburðarverð sem leiðir út í kornverðið. Um 60% af kjarnfóðurhlutanum hjá okkur í Klauf er okkar eigið bygg, það hreyfist þá ekki í verði og við getum gert áætlanir út frá því. Þetta er hið eiginlega fæðuöryggi.“

Hermann segir mesta hagræðið í mjólkurframleiðslu vera að framleiða innlent fóður. „Bændur eru oft að eyða öllum sínum beingreiðslum í að kaupa kjarnfóður fyrir kýrnar.“ Helgi Eyleifur segir ákjósanlegt að til verði mælaborð sem sýni yfirlit yfir hvað sé til á innanlandsmarkaði. Ríkari gæðakröfur séu gerðar til korns til manneldis en það sé einnig verðmætara og flokkun þurfi að eiga sér stað í stöðvunum. „Þetta væru mikilvæg gögn upp á fæðuöryggi þjóðarinnar.“

Ný þurrkstöð í byggingu á Héraði

Kornbændur á Héraði stofnuðu einnig nýverið félag og bygging stendur nú yfir á aðstöðu í Fellabæ. Áætlað er að henni ljúki í vetur og þurrkun geti hafist í kjölfarið. Stórtæk framleiðsla, þurrkun og fullvinnsla á byggi til manneldis hefur verið í Vallanesi um áratugaskeið, en allnokkrir bændur rækta korn á Héraði, enn sem komið er til nytja á eigin bæjum eins og víðar um landið. Með þurrkun eykst geymsluþol og er forsenda nýtingar til matvælaframleiðslu og framleiðslustuðnings. Helgi Eyleifur segir góða framvindu í bættum innviðum innlends kornmarkaðar vera mikinn hvata fyrir bændur sem eiga umfram land að nýta það til kornræktar.

Stuðningur stjórnvalda fyrir þurrkað korn verður aftur veittur í ár samkvæmt reglugerð um framleiðslutengdan stuðning í kornrækt.

Skylt efni: kornrækt

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...