Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Það er mat Bændasamtakanna að verði kjötframleiðslugreinunum ekki sköpuð viðundandi rekstrarskilyrði, sé hrun yfirvofandi í framleiðslunni.
Það er mat Bændasamtakanna að verði kjötframleiðslugreinunum ekki sköpuð viðundandi rekstrarskilyrði, sé hrun yfirvofandi í framleiðslunni.
Mynd / smh
Fréttir 24. október 2023

Komið verði til móts við afkomubrest bænda

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Í nýútgefinni kröfugerð Bænda­samtaka Íslands (BÍ), inn í yfirstandandi endurskoðun búvöru­samninga, kemur fram að samanlagt vanti um 12 milljarða inn í allar búgreinar svo þær geti staðið undir rekstrarlegum skuldbindingum sínum.

Aðalkrafa BÍ felur í sér að komið verði til móts við afkomubrest bænda, frá 1. janúar 2023 að telja og út samningstíma núverandi búvörusamninga, á sambærilegum grundvelli og gert var árið 2022.

Í formála Gunnars Þorgeirssonar, formanns BÍ, að kröfugerðinni fjallar hann um endurskoðun búvörusamninganna. Þar segir hann að á undanförnum mánuðum hafi staðið yfir viðræður við samninganefnd ríkisins, en fram til þessa hafi enginn vilji verið til að auka fjármagn inn í búvörusamningana, sem endurspeglist í nýbirtu fjárlagafrumvarpi og fjármálaáætlun sem gildir frá 2024 til 2028. Þetta sé raunin þrátt fyrir að ítrekað hafi verið bent á að samkvæmt ákvæðum búvörulaga eigi ávallt að tryggja nægilegt vöruframboð við breytilegar aðstæður í landinu og að kjör þeirra sem landbúnað stunda skulu vera í nánustu samræmi við kjör annarra stétta.

Hækkanir á kostnaðarliðum

Telja samtökin að hækkanir á kostnaðarliðum séu helstu ástæður þess að þessa fjárhæð vanti inn í rekstrargrundvöll landbúnaðarins; verðhækkanir á áburði, rúlluplasti, sáðvöru og kjarnfóðri. Þá hafi hækkun á fjármagnskostnaði einnig haft gífurleg áhrif.

Í sauðfjárrækt, nautgriparækt og mjólkurframleiðslu sé launagreiðslugeta langt frá því að vera ásættanleg. Þá hafa kúabændur bent á mikilvægi þess að verðlagsgrundvöllur sé endurskoðaður, sem að hluta til er tekið tillit til í meðfylgjandi töflu samtakanna þar sem fjárþörf búgreinanna er sundurliðuð.

Þróun á kostnaðarliðum í landbúnaði á síðustu árum. Miklar hækkanir á síðasta ári hafi ekki gengið til baka á þessu ári.

Afkomubrestur búgreina

Í greinargerð samtakanna um stöðumat íslensks landbúnaðar árið 2023 segir að staða flestra búgreina sé ekki frábrugðin stöðunni á síðasta ári, þær standi frammi fyrir miklum áskorunum í sínum rekstri og hluti þeirra búi við afkomubrest. „Hækkanir aðfanga í landbúnaði frá árinu 2021 hafa ekki gengið til baka. Þar að auki hefur fjármagns- og launakostnaður hækkað verulega. Að teknu tilliti til þróunar á kostnaði, afurðaverði og fjármagns á þessu ári er það mat Bændasamtakanna að fyrra mat hafi ekki verið ofmat heldur sé, að lágmarki, þörf á um 12.000 milljónum inn í greinina á þessu ári. Í þessu tilliti verður endurskoðun búvörusamninga að koma til móts við stöðuna sem uppi er til að tryggja framtíðina. Einnig þarf endurskoðunin að vera í samræmi við stjórnarsáttmála, endurspegla stöðu landbúnaðarins til skemmri og lengri tíma og fylgja markmiðum landbúnaðar- og matvælastefnum stjórnvalda,“ segir í stöðumatinu.

Aðrar kröfur BÍ eru svo nánar sundurliðaðar eftir búgreinum og málefnasviðum.

Kjötframleiðsla á Íslandi hefur dregist saman fjögur ár í röð, aðallega vegna lélegrar afkomu í framleiðslu á nautakjöti og kindakjöti.

Kjötframleiðsla dregist saman

Í ítarefni er lagður fram rökstuðningur fyrir kröfunum. Þar er meðal annars farið yfir þróun kjötframleiðslu á Íslandi á undanförnum árum. Þar kemur fram að framleiðslan hafi dregist saman fjögur ár í röð, aðallega vegna lélegrar afkomu í framleiðslu á nautakjöti og kindakjöti. Samdráttur í framleiðslu á svínakjöti og alifugla- kjöti sé einkum vegna áhrifa frá regluverki og tollasamningum. Samdráttur í framleiðslu á kjöti eigi sér stað þrátt fyrir að Íslendingum sé að fjölga og fjöldi ferðamanna sem heimsæki Ísland fari vaxandi.

Verði kjötframleiðslugreinunum ekki sköpuð viðunandi rekstrarskilyrði verði hrun í framleiðslunni innan fárra ára. Einnig er farið í ítarefninu yfir þróun á kostnaðarliðum í landbúnaði. Miklar hækkanir á síðasta ári hafi ekki gengið til baka á þessu ári. Launakostnaður hafi hækkað mikið og það sem mest muni um þá hafi vextir hækkað gífurlega mikið í landinu. Það bitni mjög hart á landbúnaðinum sem sé mjög skuldsettur miðað við veltu. Ástæðan sé meðal annars sú að undanfarin ár hafi orðið mikil fjárfesting í landbúnaði, meðal annars í þeim tilgangi að bæta aðbúnað gripa og auka vinnuhagræðingu. Þannig hafi orðið tilfærsla á kostnaðarliðum frá launalið yfir á fjármagnsliði, sem síðan hefur haft sérstaklega neikvæð áhrif á afkomu þeirra bænda sem hafa lagt í fjárfestingar í sínum rekstri.

Skylt efni: afkomuvandi bænda

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f