Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Komið gott
Mynd / HKr.
Leiðari 11. júlí 2025

Komið gott

Höfundur: Þröstur Helgason, ritstjóri

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, heldur því fram að það sé rangt af kjötafurðastöðvum á borð við Kaupfélag Skagafjarðar, Mata og Sláturfélag Suðurlands, sem að hluta eða öllu leyti eru í eigu bænda, að taka þátt í útboði tollkvóta Evrópusambandsins á kjöti. Ástæðan er ekki sú að afurðastöðvarnar séu með þessu að brjóta lög heldur sú að fyrirtækin séu að fara gegn þeirri skoðun bændanna, sem eru meðal eigenda, að til Íslands eigi að flytja sem minnst af erlendum kjötafurðum. Fyrirtæki ættu með öðrum orðum ekki að taka þátt í viðskiptum sem á einhvern hátt stangast á við skoðanir eigenda sinna. Ég hugsa að allir sjái að þetta gengur ekki upp sem almenn regla, þó að Ólafi finnist hún eigi að gilda um fyrirtæki í eigu bænda.

Fyrirtæki bænda vinna að því eins og önnur fyrirtæki að svara eftirspurn á markaði og hámarka hagnað sinn. Svo vill til að markaður með kjötafurðir hér á landi er afar virkur. Á honum starfar stór hópur fyrirtækja sem leitast við að gera það sama og kjötafurðastöðvarnar, að svara eftirspurn og hámarka hagnað sinn. Þetta blasir við þegar skoðaður er fjöldi þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í áðurnefndu tollkvótaútboði. Á meðal þeirra sem fengu hvað mest af tollkvóta voru stóru verslanakeðjurnar, heildsölur í Félagi atvinnurekenda á borð við Innnes og Ekruna og svo afurðastöðvar og tengdir aðilar, þar á meðal SS sem raunar er einnig innan vébanda Félags atvinnurekenda.

Í grein á Vísi fyrir stuttu skrifar Ólafur að afurðastöðvarnar hafi „spilað á kerfi útboðs á tollkvóta, boðið hátt í kvótana til að sölsa þá undir sig, hækka verðið á innflutningi [kjöts] og hindra þannig samkeppni við sjálfar sig“. Þetta er, eins og flest sem Ólafur segir um fyrirtæki bænda, stórundarlegur málflutningur. Ef verð hækkar á tollkvótunum er ástæðan auðvitað sú að það er umframeftirspurn eftir kvótum eins og hér að ofan var lýst. Málflutningurinn byggir ekki á mis- eða vanskilningi Ólafs á lögmálum framboðs og eftirspurnar heldur þeirri staðreynd að Ólafur er í harðri sérhagsmunagæslu fyrir fyrirtækin í sínu félagi – þó að fólkið á bak við SS hljóti stundum að klóra sér í kollinum yfir flasfengi talsmannsins.

Í Vísisgreininni tekur Ólafur mikinn snúning á því sem hann virðist telja stóru myndina á bak við umrætt tollkvótaútboð og tekst þar aftur og enn að halda því fram að bændur og fyrirtæki þeirra vinni gegn hagsmunum neytenda með því að hafa talað fyrir samkeppnisundanþágu kjötafurðastöðva í búvörulögunum. Þær undanþágur snúa raunar þvert á móti um möguleika bænda til þess að hagræða í þeim hluta rekstrar síns sem snýr að slátrun og vinnslu kjötafurða, þeim sjálfum og neytendum til hagsbóta. Það skiptir nefnilega máli að íslenskur landbúnaður búi að góðum rekstrarskilyrðum því að hann tryggir fæðuöryggi í landinu.

Málflutningur sérhagsmunaafla hérlendis gegn aukinni samvinnu og sameiningu fyrirtækja sem bændur eiga þátt í að reka í slátrun og vinnslu kjötafurða verður raunar hjákátlegur í ljósi boðaðs samruna tveggja afurðarisa í Evrópu, Arla og DMK Group, en við hann mun verða til stærsta mjólkurbú í Evrópu og það fjórða stærsta í heimi með áætlaðar árstekjur upp á nítján milljarða evra. Gert er ráð fyrir að samkeppniseftirlit ESB muni samþykkja þennan samruna. Ávinningurinn verður gríðarleg hagræðing í krafti stærðar hins sameinaða fyrirtækis sem er samvinnufélag um tólf þúsund mjólkurbænda í Evrópu.

Hér heima sitjum við föst í sama farinu. Það er fyrir löngu komið gott af afvegaleiðingu umræðunnar um íslenskan landbúnað á vegum sérhagsmunafélags atvinnurekenda.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f