Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Sífellt fleiri kemísk varnarefni hafa verið bönnuð vegna eitrunaráhrifa. Mynd tengist frétt ekki beint.
Sífellt fleiri kemísk varnarefni hafa verið bönnuð vegna eitrunaráhrifa. Mynd tengist frétt ekki beint.
Mynd / ál
Utan úr heimi 12. júní 2024

Klístrað plöntuvarnarefni

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Vonir eru bundnar við þróun klísturs úr ætri olíu til að verja nytjaplöntur gegn óværu í staðinn fyrir kemísk varnarefni.

Klístrinu er hægt að sprauta með sama búnaði og notaður er til að dreifa fljótandi áburði. Með því að oxa olíu sem notuð er í matvælaiðnaði með sérstökum aðferðum er hægt að gefa henni jafnmikla viðloðunareiginleika og límband. Við úðun myndar klístrið litla dropa á plöntunum sem eru smáum skordýrum ofviða en hafa ekki neikvæð áhrif á býflugur sem dreifa frjói eða önnur stærri skordýr sem éta minni óværu. Frá þessu er grein á vef The Guardian.

Innblásturinn að þessari lausn mun vera kominn frá plöntum af sóldaggarætt sem nota klístur til að fanga bráð. Ólíkt kemískum varnarefnum getur óværan ekki myndað ónæmi fyrir þessu efni. Til þess þyrfti hún að þróa með sér stærri og sterkari líkama.

Vegna aukinnar landbúnaðarframleiðslu hefur notkun kemískra varnarefna aukist um fimmtíu prósent á síðustu þremur áratugum. Þar sem vísbendingar eru um eitrunaráhrif þeirra á lífverur og umhverfi hefur notkun sífellt fleiri kemískra efna verið bönnuð. Helsti kosturinn við notkun klísturs er sá að það mengar ekki út frá sér og er niðurbrjótanlegt.

Framkvæmd var tilraun á kögurvængjum, sem valda skaða á meira en fimm hundruð tegundum af grænmeti, ávöxtum og blómplöntum. Þar var sýnt fram á að meira en sextíu prósent þeirra festust í klístrinu á fyrstu tveimur dögunum og héldust droparnir klístraðir í margar vikur. Þá er verið að kanna hvort hægt sé að blanda lyktarefnum í efnið sem laðar að rántítur, en þær eru náttúrulegir óvinir dýra sem valda skaða á plöntum.

Nú þegar geta bændur keypt þær og nýtt sem lífrænar varnir.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.