Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Klifshagi II
Bóndinn 5. nóvember 2015

Klifshagi II

Frá árinu 1990 komum við smám saman inn í búið þar til við tókum alveg við því í kringum 2000 en bjuggum félagsbúi með foreldrum Stefáns, þeim Pétri Sigvaldasyni og Unni Sigurðardóttur fram að því. 
 
Býli:  Klifshagi II.
 
Staðsett í sveit:  Öxarfjörður, Norður-Þingeyjarsýsla.
 
Ábúendur: Stefán Pétursson og Guðlaug Anna Ívarsdóttir.
 
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við hjónin, 3 börn og 2 tengdadætur. Baldur Stefánsson fæddur 1992, búfræðingur, kona hans er Sigríður Þorvaldsdóttir. Daníel Atli Stefánsson fæddur 1995, nemi í húsasmíði, kona hans er Berglind Heiða Guðmundsdóttir og Bjartey Unnur Stefánsdóttir fædd 2001, sem er grunnskólanemi. Svo eigum við kisu  og tvo hunda.
 
Stærð jarðar?  Ríflega 500 hektarar.
 
Gerð bús? Sauðfjárbú.
 
Fjöldi búfjár og tegundir? 550 kindur og 12 hestar.
 
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum?
Vinna á sauðfjárbúi er árstíðabundin, sauðburður á vorin, heyskapur á sumrin, göngur og réttir á haustin og viðhald og gjafalag á vetrum svo eitthvað sé nefnt, auk þess sem frúin starfar við grunnskólann á veturna. 
 
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegustu eru þegar fjölskyldan vinnur saman að rúningi og að fara í gegnum lambahópinn á haustin / leiðinlegustu eru þeir erfiðleikar sem upp koma á sauðburði eins og t.d að missa fullburða lamb í erfiðum burði.
 
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Með svipuðu sniði, hugsanlega stærri og líklega aukin þátttaka barnanna í búskapnum.
 
Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Við teljum þau viðunandi en lengi má gott bæta.
 
Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Ef rétt er haldið á spöðunum á hann að geta gengið vel.
 
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Það væri spennandi að koma okkar hreina úrvalsgóða hráefni betur inn á sælkeramarkað.
 
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Rabarbarasulta og bjór handa nágrönnunum.
 
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Án efa heimamarinerað grillað ærfillet/ærlundir.
 
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar fyrsta rúlluvélin kom og farið var að heyja í rúllur, það breytti miklu í verkun á heyi. Krakkarnir segja að það hafi verið þegar mamma rakaði með rakstrarvélina uppi.

5 myndir:

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.