Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Náttúruleg heimkynni sverðburkna eru skógar og deiglendi í Mið- og Suður- Ameríku og í Vestur-Indíum.
Náttúruleg heimkynni sverðburkna eru skógar og deiglendi í Mið- og Suður- Ameríku og í Vestur-Indíum.
Á faglegum nótum 17. mars 2022

Klassík í stofunni

Höfundur: Ingólfur Guðnason.

Sverðburkninn, Nephrolepis exaltata, hefur prýtt íslensk heimili svo lengi sem elstu menn muna. Tegundin er auðveld í umhirðu og allir sem hafa yndi af pottablómaræktun ættu að ná góðum árangri við ræktun þessarar fallegu stofuplöntu.

Burknar voru meðal vinsælustu „grænu stofublómanna“ alla síðustu öld enda er fremur auðvelt að halda þeim við ef ræktunarskilyrðum er fylgt.

Fáanleg eru nokkur yrki tegundarinnar. Munurinn felst aðallega í mismikilli skiptingu laufanna og stærð plantnanna. „Boston“-afbrigðið er líklega algengast í ræktun en „Marissa“ er þekkt dvergafbrigði.

Íslenskir pottaplöntufram- leiðendur eru um þessar mundir vel birgir af sverðburkna í gróðurhúsum sínum.

Gróhirslur Sverðburkna.

Heimkynni í rökum hitabeltisskógum

Náttúruleg heimkynni tegundarinnar eru skógar og deiglendi í Mið- og Suður- Ameríku, í Vestur-Indíum og hefur borist til Afríku. Upp af lágum jarðstöngli sverðburknans vex fjöldi langra bogsveigðra laufblaða sem gefur plöntunni lögun og form sem minnir á framandi gróður regnskóga og hitabeltis. Margskipt laufblöðin eru ljósgræn með fjöldamörgum hrokknum blöðkum, sem aftur geta skipst í enn fínlegri smáblöðkur. Út frá plöntunni vaxa mislangar, grannar greinar sem plantan getur notað til að festa sig við undirlag og aðrar greinar, en sverðburkninn getur bæði vaxið í jarðvegi og sem ásæta á trjám, við mikinn loftraka. Þar sem veðurfar gefur tilefni til getur sverðburkninn dreift sér ótæpilega og er t.d. álitin ágeng framandi tegund í S-Afríku sem ekki er heimilt að gróðursetja utanhúss.

Svipmikil planta semkallar á athygli

Laufkrónan er fagurlega sveigð og myndar glæsilegt, nærri hnöttótt form sem sómir sér hvarvetna vel, jafnt á borði og blómastandi, í gluggakistu sem og í hengipotti. Þótt umhirða sverðburkna sé ekki flókin þarf að uppfylla nokkur atriði til að hann haldi góðum þrifum. Loftraki þarf að vera nokkru hærri en algengt er í flestu húsnæði.

Til að mæta því þarf að úða hann reglulega með fínum vatnsúða og koma honum ekki fyrir nærri ofni eða öðrum hitagjöfum. Miða mætti við 70% loftraka til að honum líði vel, en það er nokkru hærri loftraki en algengur er í íbúðarhúsnæði.

Hár loftraki, miðlungs hita- og birtuþörf

Sverðburkni þolir vel venjulegan stofuhita en hann getur einnig þrifist við hita allt niður í 10 °C um tíma án þess að hljóta skaða af. Ef hitastigið er í hærra lagi þarf sérstaklega að huga að því að úða plöntuna með vatni til að halda nægilega háum loftraka, annars er hætt við að laufskemmdir verði. Birtukröfurnar eru hóflegar eins og títt er um burkna. Því má velja sverðburknanum stað þar sem nokkurs skugga gætir. Á of dimmum stað dregur þó töluvert úr vexti.

Vöxturinn getur verið hraður frá vori og fram eftir sumri. Búast má við að plantan tvöfaldi umfang sitt árlega fyrstu tvö til þrjú árin en eftir það verður vöxturinn hægari.

Fjölgun, vökvun, næring og umpottun

Auðvelt er að fjölga plöntunum um leið og umpottun er framkvæmd. Hliðargreinar með smárótum eru þá teknar af og komið fyrir í litlum pottum og þeim haldið vel rökum fyrstu vikurnar. Umpottun á útmánuðum er ætíð til bóta til að tryggja góð þrif. Veljið rakaheldna pottamold sem gjarnan má innihalda dálítið af safnhaugamold. Kannski getur þurft að minnka hana með skiptingu ef hún reynist of umfangsmikil. Huga þarf vel að vökvun og gæta þess að pottamoldin þorni aldrei um of. Á mesta vaxtartímanum er sverðburkninn vökvaður tvisvar til þrisvar í viku með daufri áburðarblöndu í annað hvert skipti. Til dæmis má miða við að nota algengan inniblómaáburð, einn tappa af áburði í 2 lítra af vatni frá mars til ágústloka. Á veturna er haldið áfram að vökva þannig að moldin í pottinum þorni aldrei alveg, en áburðargjöf er óþörf í skammdeginu. Plantan getur orðið áratuga gömul ef þessum einföldu ráðum er fylgt. Lítið er um skaða af völdum meindýra í sverðburkna.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...