Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Kjarnafæði yfirtekur SAH Afurðir á Blönduósi
Fréttir 11. september 2015

Kjarnafæði yfirtekur SAH Afurðir á Blönduósi

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Kjarnafæði mun taka við rekstri Sölufélags Austur-Húnvetninga, sem rekur SAH Afurðir á Blönduósi. Kjarnafæði tekur einnig við öllum fasteignum félagsins.
 
Þetta var samþykkt á félagsfundi hjá Sölufélaginu nýverið. Rekstur SAH Afurða hefur verið þungur undanfarin misseri og segir Björn Magnússon, stjórnarformaður hjá SAH Afurðum á Blönduósi, að þessi lending hafi verið sú sem mest sátt hafi verið um.
 
Mest sátt um þessa niðurstöðu
 
Stjórn félagsins hefur nú heimild félagsfundar til að ganga til samninga við Kjarnafæði um að það taki við rekstri þess, en fyrir átti Kjarnafæði tæplega helming í SAH Afurðum.  Lítilræði, eða um 3% hlutur, er í eigu einstaklinga á svæðinu og hefur Kjarnafæði yfirtökuskyldu gagnvart þeim.
 
„Staðan hefur verið mjög erfið undanfarin misseri og þessi niðurstaða var í raun eini kosturinn í þeirri slæmu stöðu sem uppi var og sá kostur sem mest sátt var um innan félagsins,“ segir Björn. Hann segir að innan skamms verði samkeppniseftirliti tilkynnt um breytingar, en forsenda þess að þær taki gildi er að eftirlitið samþykki þær.  „Við munum tilkynna samkeppniseftirliti um þessar breytingar þegar endanlega verður búið að ganga frá málum,“ segir Björn.
 
Umframbirgðir og mikil samkeppni
 
„Það er langt í frá að þetta sé gert af því við viljum eiga allt og ráða öllu, langt í frá. Það má segja að þessi kaup séu miðuð við að sækja í það hagræði sem mögulega liggja í nánari samvinnu félaganna tveggja,“ segir Gunnlaugur Eiðsson, framkvæmdastjóri Kjarnafæðis. Hann segir að yfirtakan á SAH Afurðum gefi glögga mynd af bágri stöðu fyrirtækja á kjötmarkaði, en rekstur fyrirtækja sem eiga allt sitt undir í sölu á kjöti sé afar erfiður.
 
„Samkeppnin er mikil og það er talsvert meira magn til af lambakjöti en markaður er fyrir sem aftur leiðir til þess að verð er lágt. Þetta hefur heldur verið að ágerast, þótt reyndar sé umfram magn milli ára heldur minna nú í ár en í fyrra.  Markaðurinn er þó fullmettur og rúmlega það.“
 
Höfum fulla trú á að dæmið gangi upp
 
Gunnlaugur segir erfitt að sitja uppi með birgðir, einkum af lambakjöti sem hefur í för með sér mikinn kostnað, einkum í formi hárra vaxta, vextir séu langt umfram það sem fyrirtæki sem nánast eingöngu starfi á innanlandsmarkaði geti unnið á, „svo einfalt er það“.
Gunnlaugur segir að Kjarna­fæðismenn sjái tækifæri í þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru, og séu þau einkum fólgin í meiri vinnslu á lambakjöti en verið hafi fram til þessa á Blönduósi. „Þetta er spennandi verkefni, en alls ekki sjálfgefið að það gangi upp. Við höfum þó fulla trú á að svo verði,“ segir hann. 

Skylt efni: afurðasalar | sláturhús

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.