Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Fimmtíu kindur gerðu sér glaðan dag í þýskri verslun á dögunum og átu úr hillunum.
Fimmtíu kindur gerðu sér glaðan dag í þýskri verslun á dögunum og átu úr hillunum.
Mynd / Skjáskot úr myndbandi
Utan úr heimi 5. febrúar 2026

Kindur hópuðust í verslun

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Um fimmtíu kindur snöruðust inn í matvöruverslun í Bæjaralandi á dögunum og ollu algerri ringulreið.

Óvenjulegir viðskiptavinir komu við í verslun smásölukeðjunnar Penny í þýska bænum Brugsinn í Main-Spessart fyrir skemmstu. Um fimmtíu kindur hópuðust inn í búðina og gerðu hilluvöruna að tímabundnu beitilandi. Atlagan stóð yfir í um 20 mínútur og vakti þó nokkra furðu og kátínu viðstaddra, bæði starfsfólks og viðskiptavina. Einhverjir urðu þó skelkaðir.

Samkvæmt talsmanni fyrirtækisins höfðu kindurnar klofið sig frá hjörð sinni skömmu áður og ráfað niður á iðnaðarsvæði bæjarins. Þar virðast þær hafa ákveðið að taka slagorð búðarinnar bókstaflega og mæta „í fyrsta sinn í Penny“. Myndband náðist af tiltækinu og gekk það ljósum logum um samfélagsmiðla og fréttaveitur. Starfsfólk reyndi að halda ró sinni á meðan skepnurnar dreifðust um afgreiðslusvæðið, en kindurnar virtust lítt gefnar fyrir góða umgengni og skildu eftir sig útvaðin gólf og tæting.

Fjáreigandinn, Dieter Michler, sagðist í samtali við þýska blaðið Welt ekki viss um hvað rekið hefði kindurnar til að þyrpast inn í búðina en taldi þó líklegt að ein þeirra hefði elt viðskiptavin með áberandi stóran og ilmandi innkaupapoka í þeirri von að innihaldið væri ætilegt. Þegar dýrin áttuðu sig á því að þetta væri líklega ekki staður fyrir sauðfé, röltu þau út aftur. Verslunin var síðan þrifin, engum varð meint af og ekki þótti ástæða til að fara fram á skaðabætur frá fjáreigandanum.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.