Íslensk kartöfluframleiðsla stendur á krossgötum og samkeppnisstöðuna þarf að bæta gagnvart innflutningi, segja kartöflubændur. Hér er Kristján Gestsson, kartöflubóndi í Forsæti IV.
Íslensk kartöfluframleiðsla stendur á krossgötum og samkeppnisstöðuna þarf að bæta gagnvart innflutningi, segja kartöflubændur. Hér er Kristján Gestsson, kartöflubóndi í Forsæti IV.
Mynd / aðsend
Fréttir 27. maí 2026

Kartöfluframleiðsla á krossgötum

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Laga þarf samkeppnisstöðu íslenskra kartöflubænda

Samkeppnisstaða kartöflubænda hefur versnað mjög á undanförnum árum. Frá 2017 hefur heildarinnflutningur á ári aukist um 1.000 tonn, en innlend framleiðsla dregist saman um sama magn. Kartöflubændur skýra stöðuna þannig að lítill sem enginn hvati sé til að rækta kartöflur á Íslandi þar sem fáir stórir birgjar stýri þessum markaði.

Jón Helgi Helgason, kartöflubóndi á Þórustöðum í Eyjafirði, segir nú stefna í að bændur þurfi að henda fleiri hundruð tonnum af íslenskum kartöflum frá síðasta hausti, þar sem ekki tekst að selja þær í vonlausri samkeppni við innflutninginn – sem hafi aldrei verið meiri. Haldi sama þróun áfram leggist íslensk kartöflurækt af.

Kristján Gestsson, kartöflubóndi í Forsæti IV.

Nægar innlendar birgðir

Afar góð kartöfluuppskera var á síðasta ári upp úr íslenskum görðum og mikið magn er í geymslum bænda nú í byrjun sumars þegar nýtt ræktunartímabil er að hefjast. Vægi verndartolla fyrir innlendu framleiðsluna hefur rýrnað mjög frá ári til árs, þar sem þeir eru krónutölubundnir og halda ekki í við almenna verðlagsþróun. Auk þess er kartöfluinnflutningur er tollfrjáls núna í júnímánuði og harðnar samkeppnin þá enn frekar.

Undanþágan fyrir innflutning á tollfrjálsum kartöflum í júnímánuði var lögfest á grunni samkomulags á milli Bændasamtaka Íslands og Félags atvinnurekenda og tók gildi árið 2021. Var þetta hugsað sem tímabundinn „tollgluggi“ sem næði yfir ýmislegt annað grænmeti þegar skortur væri á innlendri framleiðslu. Ljóst var af uppskerunni 2020 að mjög takmarkaðar birgðir yrðu í landinu af innlendum kartöflum árið 2021.

Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands, segir að lagasetningin hafi byggt á samkomulagi við Félag atvinnurekenda um að aflétta tollum af innflutningi í einn mánuð vegna slæmrar birgðastöðu. „En eftir það höfum við sett okkur upp á móti þessu. Þetta er bráðabirgðaákvæði sem er endurskoðað á hverju ári og stjórnvöld hafa ekki sýnt því neinn áhuga á að fella þetta út aftur sama hvernig staðan er á markaði,“ segir hann.

Samkeppnishæfari vara

Kartöflubændur þurfa ekki eingöngu að keppa um hilluplássið í verslunum við innfluttar kartöflur, heldur einnig oft á tíðum við ferskari vöru en þeir geta sjálfir boðið upp á. Jón Helgi segir að því sé mikilvægt að meðhöndlun þeirra og geymsla sé eins og best verður á kosið, en þar sé víða talsvert svigrúm til úrbóta.

Stofnræktun á nokkrum íslenskum kartöfluyrkjum hefur lengi tíðkast á Íslandi, í því skyni aðallega að halda útsæðinu sjúkdómafríu. Á undanförnum árum hefur af ýmsum ástæðum ekki tekist að halda úti samfelldri stofnræktun, sem hefur leitt til þess að gæðin á íslensku kartöflunum hafa gefið eftir. Með aukinni stofnrækt segja bændur að hægt verði að framleiða fallegri vöru.

Að sögn Axels stendur stofnræktin nú á krossgötum og unnið sé að því að koma henni í framtíðarbúning. Í þeirri vinnu sé meðal annars horft til þess að taka ný norsk yrki inn í íslenska stofnrækt, gera yrkjaprófanir og koma á samstarfi við norskt fyrirtæki um að hýsa plönturæktunarhluta stofnræktunarinnar.

Gert er ráð fyrir því að nýr stofnræktanda komi inn í greinina í því skyni að gera ferla skilvirkari svo hægt verði að bjóða upp á samkeppnishæfa vöru. 

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.