Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Göngugarparnir í Jónsmessugöngunni.
Göngugarparnir í Jónsmessugöngunni.
Mynd / Jóhanna Róbertsdóttir
Líf og starf 1. júlí 2024

Jónsmessuganga í Haukadalsskógi

Höfundur: Björn B. Jónsson, formaður Skógarbænda á Suðurlandi.

Sunnudaginn 23. júní var árleg Jónsmessuganga Félags skógarbænda á Suðurlandi. Að þessu sinni var gengið um skóginn í Haukadal, fallegan og fjölbreyttan skóg sem byrjað var að planta í laust fyrir miðja síðustu öld.

Minningarsúla í Haukadalsskógi eftir Guðjón Kristinsson.

Það var danskur maður, Kristian Kirk, sem hafði keypt jörðina og gaf hana Skógrækt ríkisins árið 1940. Haukadalsskógur er einn stærsti þjóðskógur á Suðurlandi og þar er aðstaða til útivistar mjög góð. Mikið er af góðum göngustígum í fallegum skóginum og á þremur stöðum er grillaðstaða með borðum og bekkjum auk snyrtiaðstöðu.

Böðvar Guðmundsson, sem um langt árabil var skógarvörður í Haukadal, leiddi gönguna og fræddi göngufólk um sögu staðarins og gróður og var sérlega gaman og fróðlegt að hlusta á hann segja frá. Fór hann í stuttu máli yfir sögu Haukadals frá því stuttu eftir landnám til vorra daga. Síðan sagði hann frá gróðursetningum í skóginum og frumkvöðlum skógræktar á svæðinu. Böðvar er sjálfsagt sá maður sem þekkir sögu skógræktar í Haukadal best og var því sérstaklega gaman að fá hann til liðs og taka að sér að leiða gönguna.

Víða hefur verið komið upp minnisvörðum um frumkvöðlana og þá sem ruddu braut skógræktar í Haukadal og gaman að kynnast þeirri sögu. Meðal annars er stytta af Kristian Kirk við innkomu í skóginn og einnig er að finna minningarsúlur sem Guðjón Kristinsson listamaður hefur skorið meistaralega út í tré.

Að lokinni göngu var boðið upp á ketilkaffi og volgar kleinur að skógarmanna sið og fólk spjallaði og naut samveru í fallegum skógarlundi.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.