Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Við gamla Elliðavatnsbæinn í Heiðmörk myndast iðulega ljúf jólastemning á aðventuhelgunum. Myndir / smh
Við gamla Elliðavatnsbæinn í Heiðmörk myndast iðulega ljúf jólastemning á aðventuhelgunum. Myndir / smh
Mynd / smh
Líf og starf 14. desember 2017

Jóla- og handverksmarkaðurinn í Heiðmörk

Höfundur: smh
Jólamarkaður Skógræktarfélags Reykjavíkur í Heiðmörk við Elliðavatn verður opinn í síðasta skiptið fyrir jól um næstu helgi frá klukkan tólf til fimm, báða dagana. 
 
Markaðurinn er haldinn ár hvert af Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Þar myndast iðulega ljúf jólastemning og heimsókn á markaðinn er orðin ómissandi hluti af aðventuhefðinni hjá mörgum fjölskyldum.
 
Jólamarkaðurinn er haldinn í Elliðavatnsbænum og við hann í Heiðmörk og mynda skógurinn og vatnið sannkallaða vetrarparadís, sem gestir geta notið þess að ganga um. Að sögn Söru Riel hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur er jólaskógurinn á Hólmsheiði þar sem fólk getur fundið og sagað sitt jólatré sjálft. Á staðnum eru sagir sem viðskiptavinir fá afnot af og skógarhöggsmenn aðstoða gesti við að finna jólatré og pakka þeim inn í net. Það kostar jafn mikið að höggva sitt eigið tré og að kaupa þau sem eru þegar hoggin, en þau eru til sölu bæði við Elliðavatnsbæinn og á Hólmsheiði. 
 
„Skógræktarfélag Reykjavíkur selur að sjálfsögðu íslensk jólatré af ýmsum gerðum, en fyrir hvert keypt tré eru 50 ný gróðursett. Auk þess verða mismunandi vörur úr skóginum í boði. Öll trén eru af löndum sem Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur umsjón með;  Heiðmörk, Hólmsheiði og Reynivellir.
Furan er sú tegund sem við seljum mest af en það fer þó jafnt og þétt af öllum tegundum.
 
Einnig má benda á að við höfum á þriðja ár selt tré sem við köllum „Einstök tré“. Þetta eru tré sem eru furðuleg í laginu, hafa marga toppa eða eru á einhvern hátt óvenjuleg,“ segir Sara.
 
Verð á trjám er á bilinu frá 5.000 krónum (0–1 metri) til 16.000 króna (2,5–3 metrar), eldiviður kostar 2.500 kr. og greinabúnt 1.500 kr. 
 
Jóla- og handverksmarkaður
 
„Skógræktarfélag Reykjavíkur heldur utan um handverksmarkað þar sem sérstök áhersla er lögð á einstakt handverk, unnið úr náttúrulegum efnum, auk þess sem mat- og  snyrtivara er þar til sölu,“ segir Sara og hvetur fólk til að fylgjast með viðburðasíðu Heiðmerkur á Facebook, þar sem úrvalið sé mismunandi eftir helgum, nýtt fólk, nýjar vörur hverja helgi.
 
„Það eru þó einstaka aðilar sem eru allar helgar. Við erum með þó nokkra bása sem eru til góðgerðarmála; Zontaklúbbur Reykjavíkur, Zontaklúbburinn Embla, Fríðuhús og Tógó eru aðilar sem starfa sem góðgerðarsamtök og rennur allur ágóði til starfsemi þessarar félagasamtaka.
 
Vörurnar eru af ýmsu tagi, ullarvörur, keramíkvörur, handgerð kerti, útskornir munir, hnífar, gærur, brúður og bangsar, leikföng úr tré, jólavörur af ýmsu tagi, myndir, barnaföt, sultur, saft, tvíreykt hangilæri, grafið ærkjöt, grafin og reykt bleikja, sósur af ýmsu tagi, bakkelsi og svo mætti lengi telja.“
 
Viðamikil menningardagskrá
 
„Félagið rekur notalega kaffistofu þar sem lagt er upp úr því að verðlag sé hagstætt þannig að flest allir ættu að hafa ráð á að fá sér kakó eða kaffisopa og með því. Viðamikil menningardagskrá er allar helgar, bæði fyrir börn og fullorðna. 
 
Menningardagkráin fyrir næstu helgi verður þannig að á laugardaginn 16. desember klukkan 13.00 hefst upplestur á kaffistofunni, þar sem Unnur Jökulsdóttir les upp úr bók sinni Undur Mývatns, en hún er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.  Klukkan 14.00 hefst Barnastund í Rjóðrinu við varðeld og les Gunnar Helgason upp úr barnabókinni Amma er best.  
 
Jólasveinarnir munu láta sjá sig, syngja og tralla með börnunum. Klukkan 15.30 hefjast tónleikar á Kaffistofu, ætla tvíburasysturnar Gyða og Kristín Anna Valtýsdætur að syngja fyrir gesti.
Daginn eftir, á sunnudeginum 17. desember, klukkan 13.00 les Kristín Eiríksdóttir upp úr bókinni sinni Elín – ýmislegt, en hún er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
 
Klukkan 14.00 hefst Barnastund í Rjóðrinu við varðeld og les Sigrún Eldjárn upp úr barnabókinni Áfram Sigurfljóð. 
 
Síðan hefjast tónleikar klukkan 15.30 á Kaffistofu og munum við tilkynna það þegar nær dregur hver stígur á svið,“ segir Sara að lokum. 

10 myndir:

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.