Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Jeep Renegade sterklega byggður jepplingur
Á faglegum nótum 5. desember 2016

Jeep Renegade sterklega byggður jepplingur

Ís-Band er nýtt bílaumboð staðsett í Mosfellsbæ og selur m.a Jeep, Fiat, Dodge og fleiri bílategundir. Fyrir nokkru prófaði ég jepplinginn Jeep.
 
Renegade-jepplingurinn er að mínu mati sá jepplingur sem kemst næst því að kallast jeppi, en hann er með hátt og lágt drif, yfirbyggingin er soðin á grindina undir bílnum. 
 
Örlítil breyting breytir bílnum úr jeppling í jeppa
 
Jeep Renegade er fáanlegur í nokkrum útfærslum, en bíllinn sem ég prófaði var með 2,0 dísilvél sem á að skila 170 hestöflum, sjálfskiptur með 9 þrepa sjálfskiptingu og á tveim númerum stærri hjólbörðum. Með því að stækka dekkin um tvær stærðir fer jepplingurinn úr „slyddujepplinga“flokki í jeppa-flokk. 
 
Við svona mikla stækkun á hjólbörðum eru bæði kostir og ókostir, en helsti kosturinn er betri fjöðrun út úr hjólbörðum, betra grip (hjólbarðar breikka um tvo sentímetra og hækka bílinn um a.m.k. þrjá sentímetra undir lægsta punkt), hærri bíll þegar ekið er í snjó og á vegslóðum. 
 
Ókosturinn er að viðbragð er aðeins minna og eldsneytiseyðsla hækkar, en kemur ekki að sök þar sem kostir eru meiri en ókostir.
 
Þægilegur í akstri og fer vel með ökumann í langkeyrslu og eyðsla lítil miðað við kraft
 
Ég ók bílnum án þess að stoppa í Hrútafjörð (rétt tæpa 200 km) og verð ég að segja að þessi bíll er sá sem mér hefur liðið best í af þeim mörgu bílum sem ég hef prófað í langkeyrslu.
 
Uppgefin meðaleyðsla samkvæmt bæklingi er 5,9 lítrar á hundraðið, en á stærri dekkjum og snjór á veginum var ég að eyða í þessum fyrri helmingi 7,4 lítrum á hundraðið sem er að mínu mati mjög gott miðað við aðstæður. Eftir ýmsar prófanir og torfæruprófanir í djúpum snjó endaði ég eftir 400 km akstur í meðaleyðslu upp á 7,8 lítra, en tel að þessari tölu megi vel koma niður um einn lítra þegar maður er búinn að læra á bílinn. 
 
Fyrsta sinn sem ég sé 220 volta rafmagnstengil í bíl
 
Eins og flestir bílar er Renegade hlaðinn aukabúnaði og öryggisbúnaði og er m.a. með ABS hemla, ESC stöðuleikastýringu, ERM veltivörn, og fjarlægðarskynjara allan hringinn. Þeir skynjuðu vel snjóruðninga við hliðina á bílnum, en í snjókófinu aftan á bílnum urðu þeir óvirkir þar til ég fór út og strauk af þeim. Í bílnum er einnig bakkmyndavél og GPS leiðsögukerfi. 
 
Framsætin eru með stillanlegan mjóbaksstuðning og hitarinn í sætinu hitar upp á mitt bak, hiti í stýri, tveir 12v tenglar, USB tengi, og útvarpið skilar hljóðinu út í sex hátalara og að hlusta á góða tónlist er hreinn unaður í þessum bíl.
 
Aukabúnaðurinn sem ég var hrifnastur af er að í bílnum er 220 volta tengill sem gefur rafmagn fyrir rafmagnstæki sem nota minna rafmagn en 1500 wött.
 
Verðið á Jeep Renegade er frá 4.790.000
 
Það er nánast ekkert hægt að lasta í þessum bíl, en af nógu er að taka í hóli. Hátt og lágt drif með 5 mismunandi stillingar fyrir fjórhjóladrifið sem miðast af við hvaða undirlag er í akstri.
 
Full stærð á varadekki, góð miðstöð sem er fljót að hitna og aksturstölva með mikið af upplýsingum.
Jeep Renegade er fáanlegur í fjórum útfærslum, með tveim mismunandi 2000 dísilvélum, annars vegar 140 hestafla eða 170 hestafla vél, beinskiptan sex gíra kassa eða 9 þrepa sjálfskiptingu.
 
Allir Jeep Renegade eru fimm manna og fimm dyra. Mikið er lagt upp úr frágangi og útliti samanber að beggja vegna við baksýnisspegilinn má sjá skraut sem er gamla grillið af gamla Jeep. 
 
Ef vel er af gáð má sjá þetta merki víðar s.s. í afturljósi. Svo má finna grópað í bílinn ártal af fyrstu árgerð Jeep, landakort af þekktum fjallvegi í USA svo eitthvað sé nefnt. 
 
Alla vega var ég yfir mig hrifinn af bílnum eftir þennan prufuakstur og væri alveg til í að skipta út mínum „jepplingi“ fyrir Jeep Renegade. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast um bílinn á vefsíðunni www.isband.is.
 
Helstu mál og upplýsingar:
 
Hæð 1.670 mm
Breidd 1.800 mm
Lengd 4.260 mm
 

 

9 myndir:

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...