Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Jarmað, hneggjað og baulað
Leiðari 4. mars 2026

Jarmað, hneggjað og baulað

Höfundur: Þröstur Helgason

LED-ljósavæðing gróðurhúsa landsins skapar ný tækifæri í ylrækt. Rannsókn Danielle Napier, orkuverkfræðings við Háskóla Íslands, sem sagt var frá í síðasta blaði sýnir fram á að ef byggð væri upp innlend grænmetisrækt sem uppfyllti næringarþarfir allra Íslendinga þá þyrfti til þess 0,43 teravattstundir af raforku ef notuð væru LED-ljós en 0,72 teravattstundir ef notaðir væru HPS-lampar sem er eldri tækni.

Hið sama á við um ávaxtarækt. Ef byggð væri upp innlend ávaxtarækt sem uppfyllti næringarþarfir Íslendinga þyrfti 1,4 teravattstundir til að lýsa með LED-lömpum, en 2,4 teravattstundir með HPS-lömpum.

Þetta er verulegur sparnaður á orku. Í rannsókninni er raunar sýnt fram á að talsvert minna rafmagn þyrfti til þess að framleiða allt það grænmeti og ávexti sem þyrfti til að uppfylla næringarþörf Íslendinga en þarf til þess að knýja þau gagnaver sem áætlað er að koma fyrir hér á landi fram til ársins 2050.

Rannsóknin vekur áhugaverðar spurningar um áherslur í íslensku atvinnulífi til næstu ára og áratuga. Ekki er nóg með að það þurfi minna rafmagn – og þar með minna umhverfisrask – til þess að svara þörf landsmanna fyrir grænmeti og ávexti heldur verða til fleiri störf í ylræktinni en gagnaverum. Allur arður af starfsemi ylræktarinnar verður þar að auki eftir í landinu en einungis arðurinn af sölu orkunnar verður eftir í landinu í tilviki gagnaveranna. Danielle bendir svo á að við getum jú borðað grænmeti og ávexti en við getum ekki borðað afurðir gagnaveranna. Að endingu má nefna að líklega höfum við lítið um það að segja hvaða starfsemi gagnaverin þjóna.

Ólíklegt er að innlend framleiðsla á grænmeti og ávöxtum verði svo mikil að hún muni sinna allri eftirspurn hér á landi. Sem stendur er markaðshlutdeild innlendrar grænmetisframleiðslu þó aðeins tæplega þrjátíu prósent. Það er of lítið og augljós sóknarfæri til staðar. Eitt af markmiðum nýrra búvörusamninga hlýtur að vera að hvetja grænmetisbændur á landinu til að framleiða meira.

Loftslags- og orkusjóður hefur nú annað árið í röð úthlutað styrkjum til orkusparandi verkefna í gróðurhúsum. Styrkirnir námu nú 118 milljónum króna og runnu til ellefu býla. Fyrst og fremst er um að ræða innleiðingu á LED-ljósabúnaði og annars konar orkusparandi búnaði. Áætlað er að hægt sé að draga úr raforkunotkun í gróðurhúsum um fjörutíu til sextíu prósent.

Þessar aðgerðir skila sér í lækkandi raforkukostnaði og þar með aukinni framleiðni og samkeppnishæfni ylræktar, eins og ráðherra orkumála benti á í frétt í síðasta blaði. Neytendur njóta á endanum góðs af hagræðingunni. Þetta verkefni er á allan hátt til eftirbreytni.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.