Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Guðrún Bjarnadóttir frá Hespuhúsinu sagði frá bláa litnum, sem á víkingaöld var eingöngu fyrir þá ríkustu, auk þess hún var með sýnikennslu í því hvernig litað er með indigo.
Guðrún Bjarnadóttir frá Hespuhúsinu sagði frá bláa litnum, sem á víkingaöld var eingöngu fyrir þá ríkustu, auk þess hún var með sýnikennslu í því hvernig litað er með indigo.
Mynd / Helga Jóhannesdóttir
Fréttir 29. september 2022

Íslensk ull á prjónahátíð í Kaupmannahöfn

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir

Á Norðurbryggju, menningarhúsi Íslands, Færeyja og Grænlands í hjarta Kaupmannahafnar, er árlega haldin stór hátíð sem heiðrar prjónaiðnaðinn. Í ár var prjónahátíðin haldin 9.-11. september og lögðu um 2.500 manns leið sína í gamla pakkhúsið.

Skipuleggjendur hátíðarinnar fyrir hönd Norðurbryggju eru prjónahönnuður og forstöðumaður Jónshúss, Halla Benediktsdóttir, og Ásta Stefánsdóttir, verkefnastjóri á Norðurbryggju. Áhugasömum gafst gestum kostur á að skoða fjölda sölubása þar sem hægt var að kaupa garn og prjónauppskriftir frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi, ásamt því að hitta aðra prjónara og fá alls kyns innblástur. Meðal annarra var að finna íslensku merkin Móakot, Einrúm, Forystusetur, Thelmu Steimann, Kvíkví, ásamt íslensku garnbúðinni Garnkiosken, sem staðsett er á Amager í Kaupmannahöfn 

Ullarpeysur af öllum gerðum.
Prjónaganga í gegnum Nýhöfn

Hátíðin hófst á föstudegi kl. 17 með prjónagöngu frá Nyhavn, í miðborg Kaupmannahafnar, að Norðurbryggju á Kristjánshöfn, en í gönguna mættu um 100 konur sem gengu með prjónana á lofti eftir götum borgarinnar, borgarbúum til mikillar gleði.

Blá ull

Á laugardeginum gafst gestum möguleiki á að hitta Guðrúnu Bjarnadóttur frá Hespuhúsinu. Guðrún er líffræðingur og plöntulitunar- fræðingur, en þennan dag mátti heyra hana segja frá bláa litnum, sem á víkingaöld var eingöngu fyrir þá ríkustu, en einnig gaf Guðrún gestum sýnikennslu í því hvernig maður litar með indigo.

Seinna sama dag mátti heyra um hvers vegna sauðnautsull er svona einstaklega mjúk og hvernig henni er safnað, þegar Mia Chemnitz frá grænlenska framleiðslufyrirtækinu Qiviut sagði frá. Færeyjar höfðu líka sitt til málanna að leggja, en Sissal Kristiansen frá Shisa Brand sagði frá færeysku ullinni, sem oftar en ekki er brennd í stað þess að gera úr henni band. Sissal kallar sig „ullar-aktivista“ og leggur sitt af mörkum til að reyna að snúa þessari þróun í átt að betri nýtingu á ullinni.

Forystusauðir og framúrskarandi peysur

Á sunnudeginum var hægt að fræðast um ull forystusauðsins, þess einstaka stofns sem eingöngu er til á Íslandi. Daníel Hansen, forstöðumaður Forystuseturs, hélt fyrirlestur fyrir fullum sal, en hann fræddi gesti um sérstaka eiginleika forystufjár, einstaka mýkt og gæði ullarinnar, og framtíðaráform Forystuseturs hvað varðar útbreiðslu þekkingar fólks á forystufé.

Þennan dag komu fleiri Íslendingar við sögu, en Helga Jóna Þórunnardóttir, sem starfar sem kennari hjá SKALS, einum virtasta hannyrðaskóla Dana, kom fram með nöfnu sinni, Helgu Isager, en þær hafa nýverið gefið út fallega bók um vettlingaprjón.

Að lokum gafst gestum tækifæri á að upplifa hinn óviðjafnanlega íslenska hönnuð og listamann Ýr Jóhannsdóttur (betur þekkt sem Ýrúrarí), en hún hélt skemmtilegan fyrirlestur og námskeið um það hvernig færa má gamlar peysur í nýtt horf á afar einfaldan og húmorískan máta. Endurnýttar peysur hennar hafa slegið í gegn um allan heim og hafa verið keyptar af söfnum í Ameríku, Hollandi og Skotlandi.

Skylt efni: prjónahátíð | ullarmessa

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.