Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Ingvi Stefánsson er nýr formaður Svínaræktarfélags Íslands.
Ingvi Stefánsson er nýr formaður Svínaræktarfélags Íslands.
Mynd / HKr.
Fréttir 15. júní 2017

Ingvi Stefánsson tekur við formennsku í Svínaræktarfélagi Íslands

Höfundur: smh

Formannsskipti urðu í Svínaræktarfélagi Íslands í byrjun júní, en þá hætti Björgvin Jón Bjarnason, sem hefur rekið búið á Hýrumel í Borgarfirði, og Ingvi Stefánsson, Teigi í Eyjafirði, hefur tekið við.  

Fóðurblandan keypti Hýrumel og afhenti Björgvin búið seinni hluta maímánaðar.

Björgvin segir að hann hafi reynt að selja bú sitt um nokkurt skeið.  „Ég hef haft önnur verkefni með höndum sem þarf að gefa meiri tíma en þau hafa fengið.  Þá tel ég líkur á að fyrirsjáanlegar breytingar í umhverfinu – sem felast í auknum innflutningi samhliða kröfum um miklar fjárfestingar – muni fækka svínabændum á næstu árum og eftir standi þeir sem annað hvort ráða yfir fleiri hlekkjum í virðiskeðjunni eða ná að skapa sér sérstöðu með öðrum hætti, svo sem fóðrun.  Hvor leiðin sem hefði verið farin hefði krafist meiri breytinga í rekstri en ég var tilbúinn að ráðast í,“ segir Björgvin.

Viljum svara kalli markaðarins og framleiða meira

Ingvi gegndi formennsku í félaginu á árunum 2003 til 2009, en þá tók Hörður Harðarson í Laxárdal við. Hann segir margar áskoranir framundan fyrir íslenska svínabændur. „Þrátt fyrir talsverða óvissu sem er framundan á allra næstu árum eru forsendur til lengri tíma litið að innlend framleiðsla muni eflast. Innlend framleiðsla hefur verið að dragast saman á sama tíma og eftirspurn hefur aukist umtalsvert. Við viljum snúa þessari þróun við, það er sinna kalli markaðarins og framleiða meira. Ef okkur tekst að kynna betur okkar afurðir og fyrir hvað þær standa þá er ég sannfærður um að framtíðin verður björt fyrir okkar búgrein.  En það er auðvitað mest undir okkur sjálfum komið að upplýsa neytendur og ekki síður stjórnmálamenn um mikilvægi íslenskrar svínaræktar og fyrir hvað við stöndum. Það er stóra verkefnið framundan,“ segir Ingvi.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.