Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Höfundur: Þröstur Helgason

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið telur nú 1.001 íbúa en fyrir tíu árum, árið 2016, voru þeir 547.

Íbúum hefur því fjölgað um 454 á einum áratug, eða um 83 prósent. Börn og ungmenni eru ríflega fjórðungur íbúanna; alls eru 246 íbúar undir 18 ára aldri, eða 24,6 prósent.

Hjónin Kristín Björk Gunnarsdóttir og Steingrímur Karlsson urðu íbúar númer 1.000 og 1.001. Hörgársveit afhenti þeim sérstakt viðurkenningarskjal af því tilefni.

Samhliða íbúafjölguninni hefur verið ráðist í uppbyggingu innviða í sveitarfélaginu. Meðal annars hafa leikskólinn Álfasteinn og Þelamerkurskóli verið stækkuð til að mæta auknum fjölda barna og fjölskyldna.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...