Hvetur alla til að skrá geitur
Mynd / ál
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hákon Bjarki Harðarson, formaður geitfjárbænda, hvetur alla bændur til að skrá geitur sínar til þess að hægt sé að skrásetja og vernda stofninn.

Skráning geita hefur verið gjaldfrjáls frá áramótum. „Planið hjá okkur er að skráning í Heiðrúnu verði áfram gjaldfrjáls en við þurfum að ná því í gegnum búvörusamninga. Á þessu ári var ákveðið að nota hluta af því sem heitir kynbótapeningar í búvörusamningunum í að greiða þetta niður fyrir geitabændur. Við næstu búvörusamninga væri draumurinn að koma því inn að þetta yrði áfram niðurgreitt,“ segir Hákon.

Hákon segir að hugsunin með því að gera skráninguna gjaldfrjálsa og aðgengilega sé fyrst og fremst til þess að fá alla til að skrá geiturnar sínar inn. „Við þurfum ætternislega séð að ná öllum gripum þangað inn til að geta komið í veg fyrir of mikinn skyldleika og til að halda utan um raunverulegan fjölda geita í landinu, við erum of oft að giska Fjarskipti: á fjöldann,“ Hákon segir að þeir sem eru með stærstu geitahópana séu allir skráðir en þeir sem eru með fáar séu ekki endilega að rata inn í Heiðrúnu.

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins segir mikilvægt að ná sem flestum geitfjáreigendum inn í skýrsluhald þannig að sem stærst hlutfall af geitfjárstofninum sé skráð með ætternisupplýsingum í Heiðrúnu. Íslenski geitastofninn er enn í útrýmingarhættu og mikilvægt sé að huga að skyldleika í svona litlum stofni. Skráningar á svipfarseinkennum, svo sem lit, hornum og öðru, hjálpa til við að kortleggja breytileika í stofninum.

„Við viljum endilega að fólk skrái sínar geitur,“ segir Hákon, „við viljum fá yfirsýn yfir stofninn, bæði þar sem við erum með hafrasæðingastöð og þar sem við erum að fara af stað með arfgerðagreiningaverkefni út af riðu, það einfaldar allt utanumhald og rannsóknir ef allar geitur eru skráðar.“ Hákon segir að það skipti ekki máli hvort um eina eða tíu geitur sé að ræða, það sé best skrá allar geitur sem fyrst.

Skylt efni: geitfjárrækt

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...