Hvammshlíðardagatalið 2026.
Hvammshlíðardagatalið 2026.
Fréttir 24. nóvember 2025

Hvammshlíðardagatal og reikningsskífa

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Venju samkvæmt gefur Karólína Elísabetardóttir, bóndi í Hvammshlíð, út dagatal á þessum árstíma fyrir komandi nýtt ár, með ýmsum fróðleik um íslenskt sveitalíf fyrr og nú.

Þetta er í áttunda sinn sem það kemur út. Auk þess hannaði hún nú líka sérstaka reikniskífu – og lét prenta í Reykjavík – sem getur sagt til um hvenær ungviði eru fædd en hún nýtist líka til að finna upphafsdaga gömlu mánaðanna.

Karólína sýnir hundinum Baugi og lambhrútinum Úlfi forsíðuna á nýja Hvammshlíðardagatalinu, sem einmitt prýðir mynd af þeim síðan í vor.

Nafngiftir heyhauga

„Sérstakan kafla fá að þessu sinni hundurinn Baugur og lambið Úlfur, sem urðu vinir í vor og þeir prýða einnig forsíðu dagatalsins. Svo finnst yfirlitskort í dagatalinu sem sýnir hvað heyhaugar af ýmsum stærðum og gerðum hétu áður fyrr. Til að mynda hét „beðja“ á Austurlandi „bólstur“ sums staðar fyrir norðan,“ segir Karólína.

„Einnig eru áhugaverðar upplýsingar um stökkbreytinguna T137 í sauðfé að finna þar, um kaupstaðarferðir um 1900, um Hraundalsréttina, svo finnst kort af Árnessýslu frá 1731, æviágrip Medoníu Guðmundsdóttur sem bjó í Hvammshlíð á árunum 1865–1866 og auðvitað margar gamlar og nýjar myndir í viðbót.

Efnið barst úr öllum áttum, að þessu sinni sérstaklega umfangsmikið frá Gróu Jóhannsdóttur í Hlíðarenda og Sigursteini Bjarnasyni í Stafni.“

Reikniskífan sem nýtist til að reikna út hvenær ungviði eru fædd en einnig til að finna upphafsdaga gömlu mánaðanna. Á bakhlið reikniskífunnar er að finna ýmsan fróðleik.

Öll ungviði sem skipta máli

Hún segir að reikniskífan sé það nýstárlega að þessu sinni úr hennar smiðju. Bjarney Jónsdóttir, bóndi og ljósmóðir á Tjörn, sagði Karólínu frá reikniskífu sem hún notaði til að finna út fæðingardag barna, en hún hafði betrumbætt eintakið sitt með því að líma einnig fæðingardaga lamba, kálfa og folalda á skífuna. Hún lagði til við Karólínu að hún gæti birt þetta í Hvammshlíðardagatalinu, sem hún gerði með viðbótum fyrir fæðingardaga kiðlinga, hvolpum og kettlinga – eða öll þau ungviði sem skipta máli fyrir íslenska bændur.

„Þá varð mér ljóst allt í einu að gömlu íslensku mánuðirnir á borð við þorra eða gormánuð fylgja einnig föstu vikukerfi: Þar með var hægt að hafa þessar upplýsingar einnig með á reikniskífunni, dýrmæta þekkingu á alíslensku kerfi sem fáir búa yfir í dag. Til varð „fjölnotaskífa“ þar sem allt er á sama stað og notendavænt,“ segir Karólína.

Hvammshlíðardagatal og Bjarneyjarskífan

Að sögn Karólínu er það Bjarneyju að þakka að þessi skífa leit dagsins ljós, það hafi verið að hennar frumkvæði og þess vegna kallar Karólína tólið Bjarneyjarskífu. Lítil frumútfærsla skífunnar til að klippa út finnst í dagatalinu, en ítarlega útgáfan er 20 sentímetrar í þvermál og var prentuð sér.

Hún segir að Kristján B. Jónsson hjá Kraftbílum hafi veitt prentstyrk þannig að hægt væri að framleiða hana á Íslandi. Bæði Hvammshlíðardagatalið og Bjarneyjarskífan fást víða á landinu og einnig beint hjá Karólínu í gegnum Facebook-spjallið eða netfangið lina@ridaneitakk.net

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...