Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Kúalubbi.
Kúalubbi.
Á faglegum nótum 31. júlí 2019

Hvaða sveppir eru ætir og hverja ber að varast?

Í lok ágúst býður endurmenntun LbhÍ upp á námskeið fyrir alla sem vilja fræðast um sveppi sem finna má á Íslandi. Hvaða sveppi er óhætt að nota í matargerð og hvaða sveppir henta ekki? 
 
Námskeiðið skiptist í tvennt, fyrri hlutinn er á formi fyrirlestra og sýnikennslu í greiningu og frágangi sveppa en í seinni hlut­anum er farið út í skóglendi í  verklega kennslu. Nemendur fara þá út ásamt kennara og fá aðstoð og kennslu við þær aðferðir sem notaðar eru til að tína matarsveppi. Þá læra nemendur að greina og hreinsa sveppi. Fjallað verður um helstu geymsluaðferðir sveppa og eins helstu nýtingarmöguleika.
 
Kennari kynnir jafnframt bók sína: „Sveppahandbókin – 100 tegundir íslenskra villisveppa“ og þátttakendum býðst að kaupa hana á niðursettu verði ef þeir svo kjósa.
 
Nemendur mæta í fatnaði sem hæfir veðri, taka með sér fötur/körfur til að tína sveppina í, heppilegan hníf fyrir hreinsun og ílát fyrir uppskeruna til að taka með heim.
 
Bjarni Diðrik Sigurðsson, skóg­fræðingur og prófessor við LbhÍ, kennir á námskeiðinu og þátttökugjald er kr. 17.900. Námskeiðið verður haldið laugar­daginn 31. ágúst, kl. 10.00-17.00 (7 kennslustundir) hjá LbhÍ á Keldnaholti í Reykjavík og í nærliggjandi skóglendi. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Iðuna fræðslumiðstöð.
 
Bjarni Diðrik Sigurðsson, skóg­fræðingur og prófessor við LbhÍ.
 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.