Landslag í Norður-Makedóníu.
Landslag í Norður-Makedóníu.
Utan úr heimi 17. nóvember 2026

Hundruð lausagöngukúa valda usla í bæ í Norður-Makedóníu

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Stór hjörð nautgripa hefur valdið usla í bænum Kriva Palanka og þorpunum í kring í Norður-Makedóníu. Íbúar bæjarins hafa um árabil glímt við stóran hóp lausagöngunautgripa og telur hjörðin nú yfir 1000 gripi. Kýrnar valda eignatjóni þegar þær ganga að næturlagi niður úr hæðunum í kring og éta sig í gegnum garða íbúa og ræktarland bænda á svæðinu. AP greinir frá.

Að sögn íbúa skapa kýrnar einnig verulega hættu fyrir vatnsból bæjarins og stefna vegfarendum á fjölförnum vegi, sem liggur til nágrannalandsins Búlgaríu, í voða. Bæjarstjóri Kriva Palanka hefur farið þess á leit við forsætisráðherra Norður-Makedóníu að lýst verði yfir neyðarástandi í sveitarfélaginu svo yfirvöld geti leyst úr nautgripavandanum.

Þungt skrifræði

Íbúar bæjarins kenna flóknu skrifræði landsins um að ekki hafi verið farið eftir fyrirmælum frá Matvælastofnun landsins frá árinu 2024. Þá átti að taka hjörðina, sem var í eigu þriggja eigenda, úr vörslu þeirra. Eigendurnir lögðust ekki gegn haldlagningu gripanna en vegna mistaka í stjórnsýslunni fór málareksturinn út um þúfur. Og síðan þá hafa nautgripirnir gengið um óáreittir. Á síðustu árum hefur nautgripunum fjölgað úr 400 í yfir 1000.

Eftir að fyrirmæli komu frá Matvælastofnuninni árið 2024 um að hald væri lagt á hjörðina hafa nautgripirnir verið á ábyrgð stofunarinnar, en stofunin hefur ekki framfylgt eigin fyrirmælum.

Íbúar leggja fram lausnir

Eignatjón í bænum er mikið vegna lausagöngunnar. Einn íbúi lýsir því að nautgripirnir hafi eyðilagt yfir 150 tré í aldingarði hans. Aðrir íbúar í útjaðri bæjarins og nálægum þorpum segja svipaða sögu. Á síðasta ári stefndi hjörðin vatnsbóli svæðisins í hættu þegar nokkrir gripir drápust við bakka þess. En reiðin beinist þó ekki að nautgripunum sjálfum, heldur stjórnvöldum sem íbúar segja hafa brugðist þegar kemur að því að taka á vandanum. Sveitarfélagið hefur ekki vald til að grípa inn í málið eins og það stendur núna.

Íbúar þorpanna í kringum Kriva Palanka leggja til að nautgripirnir verði seldir á viðráðanlegu verði. Í hjörðinni liggi mikil verðmæti. Salan gæti komið mörgum til góða í landi þar sem um þriðjungur íbúanna býr við fátækt. Verði lýst yfir neyðarástandi í sveitarfélaginu myndi það tryggja stjórnvöldum það fjármagn sem þarf til að takast á við vandann og koma böndum á flökkuhjörðina.

Skylt efni: Kýr | Norður-Makedonia

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...