Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Engar vísbendingar eru um að CRCoV geti smitað aðrar dýrategundir eða fólk.
Engar vísbendingar eru um að CRCoV geti smitað aðrar dýrategundir eða fólk.
Fréttir 8. febrúar 2022

Hundakórónaveirur líkleg orsök smitandi hundahósta

Höfundur: Vilmundur Hansen

Matvælastofnun hafa borist upplýsingar frá Tilraunastöð HÍ að Keldum og Dýraspítalanum í Grafarholti um niðurstöður rannsókna á sýnum sem tekin hafa verið á undanförnum vikum úr hundum með öndunarfæraeinkenni.

Í stórum hluta þeirra hafa greinst (PCR) kórónaveirur sem valda sýkingum í öndunarfærum hunda. Er þetta í fyrsta sinn sem þessi veira greinist hér á landi svo vitað sé. Raðgreining verður gerð til staðfestingar. Engin tenging er á milli þeirra og kórónaveirunnar sem veldur COVID-19.

Í frétt á heimasíðu Mast segir að þessar kórónaveirur kallist á ensku „canine respiratory coronavirus“ sem er skammstafað CRCoV. Þær greindust fyrst í Englandi árið 2003 en eru hluti af þeim stóra hópi sýkla sem valda smitandi öndunarfærasýkingu í hundum sem stundum kallast „hótelhósti“. Flestir sýklar í þessum hópi valda svipuðum einkennum og því er ekki hægt að greina sýkingu af völdum CRCoV út frá einkennum.

Öndunarfæra kórónaveirur hunda (CRCoV) eru mjög smitandi eins og greinilega hefur sýnt sig í þeim tilfellum sem komið hafa upp hér á landi að undanförnu. Ekki er nákvæmlega þekkt hvað tekur langan tíma frá því hundur smitast þar til einkenni koma fram, en líklega er aðeins um fáeina daga að ræða. Oftast eru einkenni væg og ganga yfir á innan við tveimur vikum en sýking getur þó þróast yfir í lungnabólgu í einstaka hundi. Þessar veirur eru erfðafræðilega og ónæmisfræðilega ólíkar þeim kórónaveirum sem valda sýkingum í meltingarfærum hunda. Engar vísbendingar eru um að CRCoV geti smitað aðrar dýrategundir eða fólk.

Ekkert bóluefni er til gegn CRCoV, enn sem komið er. Mikilvægustu aðferðir til að draga úr líkum á smiti er að forðast staði þar sem margir hundar koma saman og halda veikum hundum aðskildum frá öðrum hundum í um þrjár vikur eftir að einkenna verður vart. Rétt er líka að gæta vel allra sóttvarna við umhirðu og umgengni við hundana því smit getur auðveldlega borist með fatnaði og höndum fólks.

Meðhöndlun veikra hunda byggist á mati dýralækna í hverju tilfelli fyrir sig.

Ítarefni:
FAQ: https://www.avma.org/resources/petowners/petcare/canine-respiratory-coronavirus-faq

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.