Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Mikið safn ljósmynda er til frá sýningum í gegnum árin. Frá vinstri, efst: Leikendur í Bangsímon í búningsherberginu árið 2005, Gosi á sviði árið 1992, leikhópur Skáld-Rósu, 1980. Svo kemur atriði úr Þremur skálkum árið 1973 og Dýrið og Blíða árið 2023. Í þriðju röð; Hús Hillebrandts, 1997, Atómstöðin 1944 og að lokum frá leiksýningunni Ísjakinn árið 1975. Hluti safnsins verður til sýnis á afmælinu.
Mikið safn ljósmynda er til frá sýningum í gegnum árin. Frá vinstri, efst: Leikendur í Bangsímon í búningsherberginu árið 2005, Gosi á sviði árið 1992, leikhópur Skáld-Rósu, 1980. Svo kemur atriði úr Þremur skálkum árið 1973 og Dýrið og Blíða árið 2023. Í þriðju röð; Hús Hillebrandts, 1997, Atómstöðin 1944 og að lokum frá leiksýningunni Ísjakinn árið 1975. Hluti safnsins verður til sýnis á afmælinu.
Líf og starf 30. október 2024

Húllumhæ á áttræðisafmælinu

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Árið 1944 var Leikfélag Blönduóss formlega stofnað og starfaði nánast óslitið fram að aldamótum og sýningar settar upp með jöfnu millibili.

Nú, 2024, fagnar það áttatíu ára afmæli sínu og er ætlunin að halda veislu þann 2. nóvember næstkomandi í félagsheimilinu á Blönduósi sem hefur hýst leikfélagið um árabil.

Blómlegt leikstarf einkenndi Blönduós fyrr á tímum og áhugavert er að segja frá því að árið 1897 var fyrsta leiksýningin sett upp þar í bæ. Bar sú heitið „Kómedía“, og voru flytjendur liðsmenn „Leikfimifélags Blönduóss“. Í samtali við Evu Guðbjartsdóttur formann kemur fram að hana langi að endurvekja þennan kraft samfélagsins, en í fyrra var fjölskyldusýningin Dýrið og Blíða á fjölunum, sú fyrsta í níu ár.

„Lengi vel var frumsýnt annað hvert ár, þá í kringum páskana eða sumardaginn fyrsta, en síðastliðin ár hefur því miður dregið úr virkni félagsins. Gaman væri að fjölga meðlimum leikfélagsins svo og fólki sem hefur áhuga á að vinna bak við tjöldin – allir sem áhuga hafa eru því hér með boðnir velkomnir.“

Eva segir að þó ekki séu sýningar ár hvert sé ýmislegt brasað. Nú á næstu mánuðum er í bígerð að setja upp hæfileikakeppni, North-West got Talent, sem verður byggð á hinum vinsælu þáttum Britain‘s got Talent og fleiri slíkum. Íbúar Norðvesturlands mega því fara að hlakka til eða jafnvel undirbúa atriði.

Mikill undirbúningur er vegna stórafmælisins enda ýmislegt skemmtilegt í gangi og svo auðvitað kaffi og afmælisterta í boði.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.