Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Af Hólafjalli, 811 metrar yfir sjávarmáli. Séð þvert yfir Öxnadal, berghlaupin og jarðirnar Hóla og Hraun. Mynd / Eric Vassar Howden.
Af Hólafjalli, 811 metrar yfir sjávarmáli. Séð þvert yfir Öxnadal, berghlaupin og jarðirnar Hóla og Hraun. Mynd / Eric Vassar Howden.
Fréttir 19. nóvember 2020

Hólar í Öxnadal einkafriðaðir vegna náttúruverndar

Höfundur: Vilmundur Hansen

Hjónin Ólafur Valsson og Sif Konráðsdóttir, landeigendur jarðar­innar Hóla í Öxnadal, hafa ákveðið að stofna til svokallaðrar einkafriðunar jarðarinnar. Það gera þau vegna náttúruverndargildis jarðarinnar og mun stærstur hluti hennar njóta friðunar sem óbyggð víðerni. Einkafriðun landsvæða með þessum hætti er nýmæli hérlendis.

Um er að ræða um 1500 hektara landsvæði, eða 15 ferkílómetra, að mestu óbyggð víðerni á Hóladal, sem er 10 km langur og liggur í suður frá Öxnadal að Kambskarði í botni Skjóldals í Eyjafirði og að jökli.

Ólafur segir að hugmyndin um einkafriðun hafi kviknað á ferð með fjölskyldunni í Namibíu fyrir tveimur árum þar sem þau kynntust margs konar einkafriðlýstum svæðum. Víða um heim hvetji stjórnvöld til slíkrar friðlýsingar.

Friðun jarðarinnar markar tímamót

Ólafur segir að fyrr á öldum hafi Hóladalur verið nýttur til beitar fyrir nautgripi meðal annars en þar er votlent og grösugt. Hefðbundinn búskapur hafi lagst af á jörðinni á síðustu öld og önnur starfsemi tekið við á þessari öld.
„Fyrir mynni dalsins er miðja fornrar megineldstöðvar með öskju og framan hans er landslagsheild með miklum berghlaupum umkringdum háum tindum, þar sem Hraundrangi er tignarlegastur. Friðun jarðarinnar markar tímamót að því leyti að íslenska ríkið hefur enn ekki friðlýst neitt landsvæði sem óbyggð víðerni, en einnig sökum þess að engin formleg einkafriðlýsing landsvæðis hefur enn verið gerð á Íslandi. Einkafriðlýsing er alþjóðlega viðurkennd og alþekkt í mörgum ríkjum heims.“

Einkafriðlýsing

Að sögn Ólafs hefur verndun landsvæða hér á landi jafnan verið gerð með því að ríkið friðlýsi þau, hvort heldur sem um er að ræða land í eigu ríkisins eða einkaaðila. „Ekkert mælir hins vegar gegn því að slík verndun landsvæðis til langframa sé gerð af félagasamtökum, sjálfseignarstofnunum eða einstaklingum.“

Alþjóðanáttúruverndar­sam­bandið, International Union for Conservation of Nature, IUCN, hefur á seinni árum mælt með einkafriðlýsingum sem viðbót við friðlýsingar opinberra aðila og gefið út sérstakar leiðbeiningar þar um. Íslenska ríkið er aðili að Alþjóðanáttúruverndar­sambandinu líkt og meirihluti ríkja heims.

„Ég tel að landsvæðið sem ég hef umráð yfir uppfylli skilyrði sem verndarsvæði samkvæmt viðmiðum Alþjóðanáttúruverndar­sambandsins. Málsmeðferð til skráningar svæðisins sem verndarsvæðis í flokki 1b, eða wilderness area, stendur nú yfir hjá helsta gagnabanka heims um verndarsvæði, World Database on Protected Areas, WDPA, sem rekinn er af Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við Alþjóðanáttúruverndar­sambandið. Ég á von á að skráningu ljúki fljótlega. Friðun óbyggðra víðerna er allströng friðun, en hún er talin eiga við á langstærstum hluta jarðarinnar Hóla og fer flokkunin eftir markmiðum verndunarinnar.“

Hluti svæðisins á Náttúruminjaskrá

Náttúruverndarráð setti friðlýsingu hluta þess svæðis sem um ræðir í forgang þegar árið 1978 með opinberri skráningu þess á Náttúruminjaskrá. Árið 2007 friðlýsti þáverandi umhverfisráðherra aðliggjandi svæði þegar Hraun í Öxnadal var lýst fólkvangur.

Náttúrufræðistofnun Íslands mælti með friðlýsingu alls svæðisins í álitsgerð til stjórnvalda 2013 og í kjölfarið vann Umhverfisstofnun að friðlýsingu ásamt sveitarfélaginu og gerði formlega tillögu að henni. Á árinu 2016 voru endurheimtir á jörðinni 10 hektarar af votlendissvæði í samstarfi við stjórnvöld og hefur það svæði verið vaktað af Landgræðslunni og er hluti af samstarfi við nemendur Þelamerkurskóla í verkefninu Skólar á grænni grein.
„Árið 2019 fólum við hjónin óháðri rannsóknarstofu að gera úttekt á svæðinu með tilliti til gildis þess sem víðernasvæðis. Í kjölfarið hófst málsmeðferð til skráningar svæðisins í alþjóðlega gagnabanka Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem víðernasvæðis og stendur vinna við stjórnunaráætlun yfir.“

Vonandi hvatning til aukinnar friðunar

Ólafur segir að með einkafriðuninni vilji hann og Sif sýna í verki mikilvægi Hóla sem náttúruverndarsvæðis á landsvísu og skuldbinda verndun þess til allrar framtíðar.

„Ég vona að þetta geti orðið öðrum landeigendum, sem eru vörslumenn lands sem mikilvægt er að vernda, hvatning til að huga að möguleikum sem felast í einkafriðun, samhliða nýtingu þar sem við á.“

„Það má nefna að Ráðgjafar­miðstöð landbúnaðarins er nú í samstarfi við nokkra bændur á Vesturlandi að vinna að tilraunaverk­efni í náttúruvernd í landbúnaði og gæti einkafriðun verið meðal þess sem kæmi til álita í því sambandi,“ segir Ólafur Valsson, dýralæknir og eigandi Hóla í Öxnadal að lokum.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.