Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 12 ára.
Kristín og Þórður Kalman Friðriksson, fimm ára sonur hennar og Friðriks Erlingssonar, sem var aðstoðarmaður móður sinnar við hjónavígsluna um páskana.
Kristín og Þórður Kalman Friðriksson, fimm ára sonur hennar og Friðriks Erlingssonar, sem var aðstoðarmaður móður sinnar við hjónavígsluna um páskana.
Fréttir 8. maí 2014

Hjónavígslur vinsælar við Skógafoss og Seljalandsfoss

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson
„Þetta er nú með því skemmtilegra sem maður gerir. Manni tekst vitanlega misvel upp en þegar þetta tekst vel er þetta virkilega gefandi og eftirminnilegt og þá vonandi tekst manni að skapa einhverja töfrastund fyrir hjónaefnin, sem sum hver eru komin um langan veg til að gifta sig hér,“ segir Kristín Þórðardóttir, fulltrúi sýslumannsins á Hvolsvelli, sem er oft kölluð til að gifta við Seljalandsfoss eða Skógafoss. Ein slík hjónavígsla fór einmitt fram við Skógafoss um páskana. 
 
Kristín er einnig oddviti sjálfstæðismanna og sveitarstjóraefni fyrir sveitarstjórnarkosningar 31. maí í vor í Rangárþingi eystra. Hjónavígslurnar eru framkvæmdar allan ársins hring og flestar úti í náttúrunni. 
 
„Einhvern veginn finnst mér alltaf hafa verið gott veður þrátt fyrir að stundum hafi nú gengið á með éljum og ég jafnvel lagst í lungnabólgu á eftir. Það er náttúrulega aldrei á vísan að róa í þessum íslensku veðurmálum, og það virðast útlendingarnir alveg vera með á hreinu, stundum held ég að þetta sé bara enn eftirminnilegra ef veðrið er dálítið skrautlegt. Fólk er að sækjast eftir einhverju ævintýri. Ég gifti annað par í byrjun mánaðarins í hávaðaroki og rigningu og þau voru alsæl,“ bætir Kristín við. Aðspurð segir hún að í fyrra hafi verið rúmlega 40 hjónavígsluathafnir og hafi færst vöxtur í þetta eins og annað því það sem af er þessu ári er búið að bóka 19 athafnir. 
 
Perlurnar við Seljalandsfoss og Skógafoss eru vinsælastar, og mest eru þetta erlendir ferðamenn, eða í rúmlega 80% tilvika t.a.m. árið 2013
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.