Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Ursula Bruns.
Ursula Bruns.
Fréttir 16. júní 2016

Hestakonan Ursula Bruns

Hrossabændur á Íslandi vilja með fáeinum orðum heiðra minningu rithöfundarins og hestakonunnar Ursulu Bruns. Á langri ævi kom Ursula víða við. 
 
Hún var höfundur 40 barna- og unglingabóka þar sem sögusviðið var hestar og hestamennska, þekktastar eru Heissgeliebte Islandpferde og bækurnar um Dick og Dally (Dick und Dally und die Ponys) en þær voru síðar kvikmyndaðar undir nafninu Immenhof. 
 
Fyrsta myndin var gerð 1955 og síðan fleiri fram undir 1970. Myndin frá 1955 nefndist Die Mädels vom Immenhof og þar skildu smáhestar leika stórt hlutverk. 
 
Ursula og íslenskir hestar í Þýskalandi.
 
Töluverð átök urðu um af hvaða hrossakyni þeir ættu að vera en þegar hér er komið sögu var Gunnar Bjarnason, fyrrverandi hrossaræktarráðunautur BÍ og síðan um áratugaskeið ráðunautur um útflutning hrossa, að berjast fyrir því að íslenski hesturinn næði fótfestu í Evrópu og mynda þannig markað fyrir hross frá Íslandi. Gunnar fékk aldeilis öflugan liðsmann þar sem Ursula Bruns var og í sameiningu fengu þau því framgengt að íslensk hross urðu fyrir valinu í myndina sem skipti miklu á þeim tíma.
 
Ursula Bruns hreifst af íslenska hestinum, hún var ein af fyrstu meginlandsbúunum sem náði tökum á töltreið, hún ferðaðist víða um heim til að kynna sér tölthesta af ýmsum kynjum en íslenska hestinn hafði hún efstan á blaði. Hann var hennar eftirlæti. Ursula stundaði hestamennsku, tók þátt í félagsstarfi hestamanna og gaf út tímaritið Pony Post frá 1958 til 1968 en það var að hluta til málgagn eigenda íslenskra hesta í Þýskalandi sem fór ört fjölgandi á þessu tímabili. Um 1970 lauk þessu samstarfi en Ursula hóf þá útgáfu hins víðkunna og mikið lesna tímarits Frezeit im Sattel sem kom út frá 1969 til 2008.
 
Á margt fleira mætti minnast frá lífshlaupi þessarar mikilhæfu konu sem Gunnar Bjarnason lýsir svo að hafi verið gáfuð kona og ákaflega einbeittur persónuleiki. Það sem snertir íslenska hestinn verður þó látið nægja hér en Ursula og Gunnar áttu langt samstarf hestinum okkar til vegsauka og sennilega hefur ekkert verið eins mikilvægt á þessum tíma fyrir útbreiðslu íslenska hestsins og einmitt það. Enda segir Gunnar sjálfur að ólíklegt sé að nokkur útlendingur hafi lagt eins mikið af mörkum í því starfi og Ursula Bruns.
Það er jafnframt órækur vottur um þá virðingu og viðurkenningu sem Ursula Bruns naut að leiðarlokum að andláts hennar og lífshlaups var getið í Der Spiegel og þar er fullyrt að enginn hafi mótað jafnmikið frístundahestamennsku eftirstríðsáranna í Þýskalandi og Ursula Bruns og á því sést best hver gæfa það var að hún skyldi hrífast af íslenska hestinum.
 
Blessuð sé minning Ursulu Bruns.

2 myndir:

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.