Heitasta lifrarpylsan
Matarkrókurinn 21. október 2026

Heitasta lifrarpylsan

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Nú með haustinu er ýmislegt sem á alltaf við og hefur verið óhvikult í fjölda ára, hvort sem er kjötsúpugerð úr nýmetinu, sveppatínsla eða sláturtaka.

Þegar daginn er farið að stytta og kuldaboli lætur á sér kræla er ekki úr vegi að njóta íslenskra rétta, jafnvel með smá tvisti. Það má viða að sér hinu og þessu úr nærumhverfinu, enda landið okkar gjöfult á marga vegu.

Kjötsúpa

Íslenska kjötsúpan er í grunninn alltaf eins, gott er að fá í pottinn kjöt af nýslátruðu nú að hausti blandað nýuppteknu grænmeti, en oft hefur hver fjölskylda sína eigin hefð þegar kemur að gerð súpunnar og leyndarmál bragðgæðanna vilja fylgjast á milli kynslóða.

Einhverjir setja í hana haframjöl, hrísgrjón eða bygg á meðan öðrum þykir gott að bragðbæta hana með engifer, hvítlauk eða jafnvel chili. En aðalatriðið er nú auðvitað að njóta hennar til hins ýtrasta því hún er bæði holl og góð.

Sveppir

Besta tímanum til sveppatínslu hérlendis er nú senn að ljúka, og má vænta þess að margir hafi reynt fyrir sér á þeim vettvangi, enda nokkuð sprottið af hinum ýmsu tegundum matsveppa undanfarið.

Ganga þarf vel frá sveppunum eftir ferð í sveppamó, þurrkun eða frysting þarf að eiga sér stað hið snarasta þegar komið er heim, enda talið óráðlegt að geyma ferska sveppi lengur en sólarhring eftir tínslu.

Slátur

Slátur, unnið úr innmat og blóði lamba, er ein allra elsta hefðin sem tengist sláturtíðinni og skiptist í tvær tegundir.

Blóðmör, sem gerður er úr blöndu af nýju blóði, vatni, salti, haframjöli, rúgmöli og söxuðum mör, sett í vömb og soðin að minnsta kosti í tvo og hálfan tíma, og svo lifrarpylsan, sem í dag er vinsælli meðal nýgræðinga, útbúin á sama hátt og blóðmörinn.

Þá í stað blóðs og vatns eru lambalifur og gjarnan nýru hökkuð og sett í uppskriftina auk mjólkur, en mör, salt, rúg- og haframjölið látið halda sér.

Og eins og þorri landsmanna veit er upplagt að bera fram heitt slátur með rófustöppu eða nýsoðnum kartöflum, á pönnu með sykri auk þess að þykja ljúfmeti ofan á vel smurðu brauði. Jafnvel súrsuð við tilefni.

En hins vegar ...

Fyrir þá sem koma ferskir heim úr sveppatínslunni og langar í matarmikla lifrarpylsu með nýju sniði er lifrarpylsan hennar Sólveigar Eiríksdóttur listakokks akkúrat málið.

Sólveig, eða Solla eins og hún er kölluð, er einn helsti frumkvöðull grænkerafæðis hérlendis og mörgum kunn, enda með eindæmum hress og skemmtileg kona sem hefur verið í fararbroddi á heilsusviðinu og brautryðjandi í grænmetis- og hrámatargerð (raw food) á Íslandi í meira en þrjá áratugi.

Solla veit því nákvæmlega hvernig á að meðhöndla grænmeti og gæða hvern rétt einstökum töfrum, þar sem hollusta og bragð fara saman. Forvitnir lesendur sem hafa ekki látið reyna á grænmetisrétti ættu endilega að taka af skarið og skella í eina lifrarpylsu.

Lifrarpylsunnar hennar Sollu má svo njóta ofan á nýbakað brauð, með grjónagrautnum eða bara stýfa hana úr hnefa eins og aðra dásemd sem kemur úr hennar smiðju.

Skylt efni: matarkrókur

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...