Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Þátttakendur og leiðbeinendur hittust í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum í sumar.
Þátttakendur og leiðbeinendur hittust í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum í sumar.
Mynd / Bjarki Sigursveinsson
Á faglegum nótum 20. febrúar 2024

Heimsókn í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum og Hólsgerði í Eyjafirði

Höfundur: Berglind Ósk Alfreðsdóttir, erkefnastjóri Loftslagsvæns landbúnaðar.

Árlega hittast þátttakendur og leiðbeinendur í Loftslagsvænum landbúnaði á einhverju þátttökubúanna. Þetta er mikilvægur þáttur í verkefninu þar sem bændur læra hver af öðrum og fá fræðslu frá ráðgjöfum um þætti sem geta haft áhrif á búreksturinn.

Í sumar buðu Aðalbjörg Ásgeirsdóttir og Eyvindur Ágústsson þátttakendum í heimsókn að Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum og Sigríður Bjarnadóttir og Brynjar Skúlason gerðu slíkt hið sama í Hólsgerði í Eyjafirði. Þátttakendur velja á hvorn staðinn þeir mæta, eftir því sem hentar betur hvað varðar staðsetningu og tímasetningu.

Þátttakendur og leiðbeinendur hittust í Hólsgerði í Eyjarfirði í sumar.

Loftslagsvænn landbúnaður

Loftslagsvænn landbúnaður er samstarfsverkefni Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, Lands og skógar, matvælaráðuneytisins og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Markmið hans er að auka þekkingu bænda á loftslags- og um- hverfismálum, með fræðslu og ráðgjöf. Bændur setja sér markmið og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði og vegna landnýtingar, ásamt því að auka kolefnisbindingu í jarðvegi og gróðri. Í verkefninu eru nú 56 þátttökubú í sauðfjárrækt, nautgriparækt og nú í haust bættust við grænmetisbændur sem stunda útiræktun grænmetis. Í loftslagsvænum landbúnaði er leitast við að minnka kolefnissporið samhliða því að hagræða í rekstri.

Anna Bau segir frá jarðræktartilraunum á Geitasandi.

Stóra-Mörk undir Eyjafjöllum

Í Stóru-Mörk er búið með nautgripi, bæði til mjólkur- og kjötframleiðslu en einnig með sauðfé og enn fremur er þar rekin ferðaþjónusta. Bændurnir þar hafa verið þátttakendur í Loftslagsvænum landbúnaði frá árinu 2020 og unnið að markmiðum sem m.a. miða að því að minnka notkun tilbúins áburðar án þess að skerða magn uppskeru og fóðurgæði, sá niturbindandi plöntum í allar nýræktir á búinu og minnka olíunotkun.

Í Stóru-Mörk er unnið mjög öflugt landgræðslustarf og hlutu þau sem þar búa m.a. landgræðsluverðlaunin 2021. Þau hafa markvisst unnið að því að bæta ástand illa gróins lands og nú er markmið þeirra að endurheimta birkiskóg á Merkurnesi.
Dagurinn byrjaði á því að Aðalbjörg og Eyvindur sögðu frá búrekstrinum, sögu bæjarins og þeim áskorunum sem þau standa frammi fyrir í sínum rekstri. Þau hafa nýverið sameinað jarðirnar og reksturinn í Stóru-Mörk I og III. Þau hafa verið mjög öflug í uppgræðslu og Stóra- Mörk er eitt af fáum búum sem hefur verið í verkefninu Bændur græða landið frá upphafi. Fyrir hádegi var mikil áhersla lögð á túnrækt og uppgræðslu, hvað hægt sé að gera til þess að auka og bæta uppskeru. Ráðunautar lögðu m.a. áherslu á að bændur taki jarðvegssýni til þess að þekkja samsetningu og sýrustig jarðvegarins, velji rétt yrki og noti smára til þess að auka niturbindingu í jarðveginum.

Túnrækt, val á yrkjum og notkun á smára var sérstaklega rædd.

Eftir hádegi var Símonarskógur í landi Dalssels skoðaður þar sem skógræktarfulltrúi sýndi umhirðu í nýskógrækt, m.a. snyrtingu og toppaklippingar.

Síðan var farið á Geitasand á Rangárvöllum þar sem fjallað var um áhrif ólíkra tegunda og samsetningar af lífrænum áburði á uppgræðslu, en þar eru í gangi tilraunir þar sem borin eru saman áhrif mismunandi lífrænna efna á gróðurframvindu á rýrum mel.

Valdimar Reynisson skógræktarráðgjafi sýnir umhirðu nýskógræktar.

Hólsgerði í Eyjafirði

Í Hólsgerði er rekið sauðfjárbú og þar er þess utan mjög mikil áhersla lögð á skógrækt, þá sérstaklega nytjaskógrækt en einnig eru skjólbelti mikið notuð til þess að skýla búfé og ræktarlandi.

Frá því að Sigríður og Brynjar fluttu í Hólsgerði hefur fjölskyldan verið samhent í að rækta skóg, en skógræktarsvæðið var að hluta frekar rýrt og illa farið vegna ofbeitar en er nú skógi vaxið. Þau hafa verið þátttakendur í Loftslagsvænum landbúnaði frá árinu 2020. Þau hafa m.a. sett sér markmið um bætta nýtingu á búfjáráburði, ræktun smára í túnum og fara sparlega með olíu ásamt því að auka afurðir með góðri frjósemi og beit.

Í Eyjafirði byrjaði dagurinn með heimsókn í jarðgerðarstöðina Moltu þar sem Kristján Ólafsson framkvæmdastjóri og Hermann Ingi Gunnarsson, sem hefur mikla reynslu og þekkingu af notkun moltu í túnrækt, sýndu hópnum framleiðsluferlið og ræddu um notkun moltunnar.

Þegar komið var í Hólsgerði tóku Brynjar og Sigríður á móti hópnum og buðu upp á ketilkaffi á meðan þau sögðu frá bænum, sögu hans, rekstri og umhverfis- og loftslagsaðgerðum. Brynjar er menntaður skógfræðingur og hefur mikla þekkingu ásamt reynslu af skógrækt, sem hann miðlaði til þátttakenda. Hann kynnti allt ferli skógræktar, s.s. gróðursetningu, áburðargjöf, umhirðu og nýtingu skógarafurða, en þau hjónin eru m.a. að undirbúa að klæða íbúðarhúsið á jörðinni með veggskífum úr trjám sem þau hafa ræktað.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.