Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Andi Barbie sveif um palla Moschino á vorsýningunni árið 2015.
Andi Barbie sveif um palla Moschino á vorsýningunni árið 2015.
Líf og starf 29. júlí 2022

Heilbrigð og jákvæð sýn á líkamann

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Í tískuheiminum þetta sumarið má vart snúa sér í hálfhring án þess að verða var við stefnu er kallast Barbiecore og á rætur sínar að rekja til klæðaburðar leikfangs.

Ekki eru allir hrifnir af þeirri hugmynd að Barbara Millicent Roberts, eða plastdúkkan Barbie, sé í hávegum höfð – en þess verður þó að gæta að áður en ímynd hennar er dæmd óhæf mætti líta framhjá ytra útliti hennar og einblína frekar á sterkan karakter, áhrif, afrek og aðra jákvæða punkta.

Í sumar verður enginn
maður með mönnum nema að fjárfesta í bleikum platformskóm.

Alveg síðan Barbie var kynnt til leiks árið 1959 hefur hún án efa borið þann titil að vera tímalaus fyrirmynd. Hún hefur sýnt börnum að þau geti orðið það sem þau vilja, án tillits til þess hvernig ytra útlit þeirra er. Barbie sjálf hefur til dæmis verið í hlutverki skordýrafræðings, læknis, prinsessu og sendiherra UNICEF – auk þess að vera geimfari áður en Neil Armstrong komst til tunglsins.

Í heimi þar sem enn er stundum litið á styrk og kvenleika sem andstæða eiginleika, sýnir Barbie fram á að allt er mögulegt. Samkvæmt framleiðanda hennar, Mattel, fagnar vörumerkið fjölbreytileikanum á sem víðtækastan hátt, er fylgjandi hjónabandi samkynhneigðra og hefur nú nýverið framleitt transdúkku.

„Við teljum það mikinn heiður að fagna verðlaunaleikkonunni og LGBTQ+ réttindabaráttumanninum Laverne Cox með dúkku,“ sagði Lisa McKnight, framkvæmdastjóri og alþjóðlegur yfirmaður Barbie &Dolls hjá Mattel í viðtali við The Guardian.

Veitir fyrirtækið einnig framlag í nafni Cox félagasamtakanna TransFamilySOS, sem hafa það hlutverk að þétta samfélag transfjölskyldna á einn eða annan hátt. 

Er rétt að kenna börnum að dæma eftir útlitinu?

Áhugavert er að samfélög víðast hvar í heiminum virðast ekki eigaauðvelt með að líta framhjá óraunhæfum líkamshlutföllum Barbie. Dæma hana út frá útliti hennar, frekar en lífssýn, afrekum og yfir 200 starfsferlum. Jú, líkamshlutföll hennar eru ekki raunhæf, en Barbie er plastdúkka.

Hönnuðurinn Betsey Johnson er ávallt með puttana á púlsinum.

Barnaleikföng eru sjaldan nákvæm framsetning á raunveruleikanum, ef vel er að gáð. Börn vita það nema þeim sé bent á annað og því ekki jákvætt að foreldrar brengli hugsunarhátt þeirra óumbeðin. Framleiðendur hafa þó tekið rólega á móti allri gagnrýni. Barbie hefur haldið sínu striki og verið áfram hún sjálf, sem er til fyrirmyndar út af fyrir sig.

Sýn tískunnar 2022-2023

Hvað viðkemur tískuhræringum ársins er nú helst uppi á teningnum vísun í klæðaburð Barbie, sem hefur gegnum árin verið áberandi litskrúðugur öllu jöfnu, fjörugur og oft í bleikari kantinum. Slíkar áherslur má finna víða á pöllum tískunnar þessa dagana og þá undir heitinu Barbiecore – ef til vill ætlað fólki sem eru „hardcore“ aðdáendur Barbie.

Frá haustsýningu Valentínó á dögunum. Mynd / Myndskeið

Tískuveldi Valentino sem lauk haustsýningu sinni fyrir árið 2022 nú nýverið í Róm, er meðal annars undir áhrifum Barbiecore og kynnti fuchsia- bleika kjóla, buxnadress og platform hæla í stíl undir stjórn hins skapandi stjórnanda Pierpaolo Piccioli.

Pönkdrottningin og hönnuðurinn Betsey Johnson er önnur sem hefur umfaðmað Barbicore og má sjá ýmsa gleði frá henni nú í ár – en hún hefur reyndar alltaf leikið sér með rokk og ról útgáfu þess sem mætti flokkast undir fjöruga tísku Barbie.

Áhrifavaldurinn Kim Kardashian í bleikum alklæðnaði. Mynd / Instagram

Áhrifavaldar og ýmsar stjörnur á borð við Paris Hilton, Kim Kardashian og söngkonuna Nicki Minaj hafa þó – í gegnum árin – verið óhræddar við að klæðast alklæðnaði í anda dúkkunnar margfrægu, í bleiku frá toppi til táar. Hönnuðir eru þar ekki undanskildir, t.d. ef litið er á vorsýningu Moschino árið 2015. Þar strunsuðu módelin um tískupallana eins og klippt út úr pöntunarlista Barbiefatnaðar við mikla gleði viðstaddra. Má því segja að grunnt sé á Barbídúkkunni í fólki og skilji það hver á sinn hátt.

Barbiecore-tískan er greinilega eitthvað sem gleður hjartað, opnar fyrir þann möguleika að ekki þurfi alltaf allt að vera svart og mælir óhikað með því að taka sér Barbie til fyrirmyndar.

Hún hefur a.m.k. jákvæða sýn á sjálfa sig, full lífsgleði og tekur ekki mark á hvað öðrum finnst.

Skylt efni: tíska

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.