Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Vagnarnir frá Mecho ehf. eru sambærilegir vögnum sem framleiddir voru af Vélsmiðju Sigurðar á árum áður.
Vagnarnir frá Mecho ehf. eru sambærilegir vögnum sem framleiddir voru af Vélsmiðju Sigurðar á árum áður.
Mynd / Aðsendar
Líf og starf 11. júlí 2023

Hannaði vagna í frístundum

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Jóhann Björnsson vélaverkfræðingur, hefur endurvakið íslenska hönnun á vélavögnum, undir merkjum Mecho ehf.

Vélsmiðja Sigurðar framleiddi vélaflutningavagna um árabil, sem verktakar voru ánægðir með. Eftir að sú framleiðsla lagðist af, sá Jóhann ákveðið tómarúm, sem hann hefur fyllt með endurbættri útgáfu – byggðri á eldri vögnunum.

Jóhann Björnsson vélaverkfræðingur er uppalinn á Skriðufelli í Þjórsárdal. Hann sá að komið væri að endurnýjun á vögnum sem smíðaðir eru eftir íslensku lagi.

„Ég er búinn að vinna í mörg ár sem vélahönnuður. Svo kemur þetta sem hobbí. Í staðinn fyrir að sitja heima fyrir framan sjónvarpið, þá fer ég að gera þetta,“ segir Jóhann. Hans aðalstarf er að hanna vélar fyrir norska olíuiðnaðinn og hefur hann búið erlendis frá árinu 2000.

Jóhann segist hafa nokkur tengsl við verktakabransann. Hann skynjaði að þar væri áhugi fyrir endurkomu vagna af þessu tagi. Aðspurður hver helsti munurinn sé á þessum vögnum, samanborið við það sem framleitt er fyrir erlenda markaði, segir Jóhann það meðal annars felast í stærri hjólbörðum og aukinni veghæð. „Íslendingarnir vilja hafa þetta á háum hjólum,“ segir hann.

Smíðað í Tyrklandi

Jóhann vill ekki eigna sér allan heiðurinn af hönnun þessara vagna, heldur eru þeir byggðir á hugmynd Vélsmiðju Sigurðar. Hann var ekki með aðgang að upphaflegu teikningunum, en skoðaði vagn frá þeim til að fá helstu málin. Þá teiknaði hann vagnana í fullkomnu tölvuforriti, sem gaf honum færi á að burðarþolsmæla hönnunina og betrumbæta þar sem þurfti.

Jóhann veit ekki hversu mörg eintök voru framleidd af vögnum í Vélsmiðju Sigurðar. „Það var dálítill fjöldi. Nú eru þeir orðnir það gamlir að það er farið að koma að endurnýjun á suma þeirra.“

Tyrkneskur vagnaframleiðandi smíðar vagnana eftir teikningum Jóhanns. Fyrstu þrír vagnarnir komu til landsins haustið 2021 og hefur Jóhann fengið jákvæð viðbrögð. Í lok sumars verða samtals sex vagnar komnir til landsins.

Laushálsavagnar nýjung

Fljótlega sá hann möguleika á að endurbæta hönnunina enn frekar og hannaði svokallaða laushálsavagna, sem er hægt að keyra upp á bæði að framan og aftan. Þegar framparturinn er tekinn af, þá er mun minni halli sem vélarnar þurfa að keyra upp. Það hentar sérstaklega vel til að flytja hörpur, brjóta og aðrar vélar sem ráða illa við að aka upp brattar sliskjurnar að aftan. Þetta segir Jóhann að sé ný nálgun, sem hann hefur hvergi séð annars staðar.

Jóhann segir burðargetu vagnanna yfirleitt takmarkast af öxulþunga á hverjum stað. Laushálsavagnarnir eru 17 tonn og er Jóhann búinn að reikna út að þeir þoli að flytja 67 tonna farm. Þungaflutningar sem þessir eru alltaf háðir undanþágu hjá Samgöngustofu, þar sem almenn hámarksþyngd vöruflutningabíla er 40 tonn. Enn fremur eru vagnarnir þrír metrar á breidd, sem er breiðara en hefðbundnir vöruflutningavagnar. „Þetta eru vagnar sem eru bara til þess að flytja þungar vélar og eru alltaf á undanþágu. Ég er að sigta inn á markaðinn með þessa þungaflutninga.“

Fimm öxlar eru undir vögnunum og eru fjögur hjól á hverjum. Öftustu öxlarnir eru svokallaðir eltiöxlar, sem fylgja með í beygjum. Vagnarnir eru með loftpúðafjöðrun og er hægt að lyfta upp öxlum þegar hann er ekinn án farms.

Laushálsavagninn er nýjung. Hægt er að taka frampartinn af og keyra vinnuvélar upp að framan og aftan.

Erfitt að gefa nákvæmt verð

Jóhann vill fara mjög varlega í að gefa upp nákvæmt verð á svona vagni í blaðaviðtali, en kaupendur þurfa að fá tilboð hjá honum fyrir hverja sölu. Það skýrist að miklu leyti af því að stjórnvöld í Tyrklandi hafa misst stjórn á verðbólgunni og framleiðandinn gefur Jóhanni einungis tilboð sem gildir í nokkrar vikur. Hann býst við að vagnarnir kosti á bilinu 14–17 milljónir án vsk í dag. „Þetta er nú bara aukavinnan mín, þannig að ég hef mjög hóflega álagningu. Mér finnst gaman að gera eitthvað sem tengist Íslandi og held þá smá tengslum við landið og legg mitt af mörkum til að skapa eitthvað sem kemur sér vel fyrir landann,“ segir Jóhann.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...