Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarðinn á gott samfélag?“ spyr Silja Elvarsdóttir, nýkjörinn formaður Miðstöðvar velsældarhagkerfis á Íslandi. Hún telur tímabært að hefja af alvöru samtal um tilgang hagkerfisins og hverjum það skuli þjóna.

„Mér finnst samtal um sjálfbærni alltaf enda í því að við þurfum að breyta efnahagskerfinu svo dæmið gangi upp.“ Silja segir hagvöxt ekki mæla margt af því sem máli skiptir, „að eiga tíma með fjölskyldunni, upplifa tilgang, lifa við góða heilsu eða búa við heilbrigða náttúru.“

Vöxtur skapi örugg störf

Silja segir að í samfélaginu þurfi að spyrja nýrra spurninga. „Hvernig tryggjum við að framleiðniaukning og verðmætasköpun skili sér með sanngjörnum hætti til launafólks? Hvernig má tryggja að vöxtur í fyrirtækjum skapi örugg og góð störf?“

„Það er erfitt að knýja fram breytingar sem við þurfum, svo sem á sviði landbúnaðar, grænnar orku og umhverfismála, eins og efnahagskerfið er í dag. Það þarf eitthvað utanaðkomandi til að knýja breytingar,“ segir Silja. „Það að Hormússundið lokaðist ýtti undir fjárfestingar í grænni orku til dæmis.“ Hún segir marga undirliggjandi þætti hafa áhrif á velsæld í samfélaginu. Þörfin sé mikil á að skoða heildarmyndina.

Hagvöxtur fyrir hvern og á kostnað hvers?

„Hagvöxtur er ekki alltaf af hinu góða, og hefur ýtt undir ójöfnuð, ofnýtingu auðlinda og hningnun vistkerfa. Við getum því ekki gefið okkur að hann skapi ávallt betri skilyrði.“ Silja segir hagvöxt ekki mæla margt af því sem máli skiptir, „að eiga tíma með fjölskyldunni, upplifa tilgang, lifa við góða heilsu eða búa við heilbrigða náttúru.“

Hún nefnir einnig dæmi um rými sem listamönnum hefur verið sagt upp nýverið í Reykjavík og að virðið sem sú útleiga hafi skapað sé hvergi metin. „Velsældarhagkerfi er regnhlífarhugtak yfir þá sýn að hagkerfið eigi að þjóna fólki og náttúrunni, en ekki öfugt.“ Silja nefnir einnig að stjórnendur margra fyrirtækja vilji gera betur á sviði umhverfismála, en það sé erfitt þegar æðsta takmarkið sé álitið einvörðungu að hámarka arðsemi. „Um leið og skilgreind hlutverk og ábyrgð fyrirtækja, stofnana og annarra hagaðila eru víkkuð út opnast meira rými fyrir þær breytingar sem þurfa að eiga sér stað.“

Spurt um tilgang hagkerfisins

Miðstöð velsældarhagkerfis miðar að því að vera vettvangur fyrir ólíka hagaðila í samfélaginu til að rýna í tilgang hagkerfisins og leita nýrra lausna. „Núverandi hagkerfi skapar gríðarleg félagsleg og umhverfisleg vandamál, sem síðan er reynt að leysa úr eftir á,“ segir Silja. „En þá er aðeins verið að vinna á yfirborðinu, en ekki farið ofan í rót vandans. Gert er ráð fyrir að vöxtur sé forsenda betra samfélags, þegar endalaus framleiðsla og neysla er að keyra okkur fram af brún þess sem jörðin þolir. Velsældarmódelið snýr þessu á hvolf og vill breyta þeim gildum og markmiðum sem knýja kerfið áfram. Áherslan er á að skapa hagkerfi sem tryggir fólki nú og í framtíðinni velsæld innan þolmarka jarðar.“

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...