Hærra afurðaverð í útiræktun – meiri kostnaður í ylrækt
Mynd / Úr safni
Fréttir 16. mars 2026

Hærra afurðaverð í útiræktun – meiri kostnaður í ylrækt

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Rekstrarafkoma garðyrkjubænda versnaði nokkuð á árinu 2024.

Þetta kemur fram í nýrri rekstrargreiningu Ráðgjafarmið- stöðvar landbúnaðarins (RML).Ívar Ragnarsson, ráðgjafi á rekstrar- og umhverfissviði, segir að ástæðuna megi rekja til þess að fasti kostnaðurinn hafi hækkað nokkuð í ylræktinni og þá sérstaklega raforkuverð og launaliður. Samanlagt telji þessir liðir meira en tvo þriðju af fasta kostnaðinum í ylræktinni.

„Síðan voru engar svokallaðar sprettgreiðslur á árinu 2024, sem var viðbót við beingreiðslur í ylræktinni á árinu 2023,“ útskýrir Ívar.

Betri afkoma í útiræktun

„Afkoma í ylræktinni á tómötum, gúrkum og papriku er heldur lakari árið 2024 hjá þeim búum sem mynda það meðaltal sem unnið er með. Meðaltal segir þó ekki alla sögu þar sem breiddin er mjög mikil,“ heldur Ívar áfram.

„Í útiræktinni er þessu öfugt farið og þó svo að ekki séu neinar sprettgreiðslur þar heldur á árinu 2024 og uppskera sé minni, þá er hærra afurðaverð og litlar breytingar í kostnaði að orsaka töluvert betri afkomu að meðaltali.

Það er samt alltaf svolítið erfitt að horfa á eitt stakt ár í rótargrænmeti þar sem sala hvers árs byggir að hluta til á uppskeru ársins á undan – og birgðum yfir áramót – og þess vegna er gott að horfa á fleiri en eitt ár í einu.“

Gögn frá um 50 framleiðendum

Rekstrargreining RML er nú gefin út í fjórða sinn og gengur verkefnið út á að sundurliða rekstrargögn garðyrkjubúa eins og kostur er og skoða þróun. „Gögn í heildarsafninu eru frá um 50 framleiðendum sem dekka rekstur þeirra fram- leiðenda sem fá um 90% allra stuðningsgreiðslna í garðyrkju árin 2023 og 2024. Þetta stóra gagnasafn gerir okkur meðal annars kleift að skoða þróun á rekstrarniðurstöðum garðyrkjunnar nánast allrar í heild ár fá ári.

Helstu niðurstöður nú eru þær að breytilegur og fastur kostnaður á einingu hækkar, hvort sem horft er á kíló eða flatarmál. Framlegð afurðatekna hækkar hins vegar almennt í greininni allri árið 2024.

Ekki er farið í djúpa greiningu á annarri tegund ylræktar en tómötum, gúrkum og paprikum, eins og til dæmis blómum og salati. En ljóst er þó að afkoman árið 2024 í þessum tegundum er lakari að meðaltali en árið áður,“ segir Ívar.

Frekar neikvæð þróun

Ef garðyrkjan í heild sinni er skoðuð þá er þróunin þar milli áranna 2023 og 2024 frekar neikvæð. Í yfirlitinu kemur fram að tekjur hækki alls um 7%, en gjöld um 8,5%. Heildarafkoma versnar þannig um 12% og heildarskuldir hækka um 22%.

Að sögn Ívars er garðyrkjan þó að meðaltali minna skuldsett en aðrar búgreinar og þó fjármagnskostnaður hafi hækkað á síðustu árum er hann þó ekki eins íþyngjandi og hjá öðrum búgreinum.

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...