Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna segir að hækkun sjávarmáls muni hafa gríðarleg áhrif á líf milljarða manna. Ræktarland til matvælaframleiðslu muni dragast saman, fátækt aukast og tíðni sjúkdóma einnig.
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna segir að hækkun sjávarmáls muni hafa gríðarleg áhrif á líf milljarða manna. Ræktarland til matvælaframleiðslu muni dragast saman, fátækt aukast og tíðni sjúkdóma einnig.
Mynd / umsplash
Utan úr heimi 1. mars 2023

Hækkun sjávarmáls og fólksflutningar

Höfundur: Vilmundur Hansen

António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, lét fyrir skömmu hafa eftir sér að hækkun sjávarmáls vegna loftslagsbreytinga muni leiða af sér fólksflutninga af áður óþekktri stærð.

Í máli Guterres kom fram að sjávarmál hafi hækkað mikið undanfarna áratugi og að allt bendi til að slíkt eigi eftir að aukast og að ekki sé langt í að það eigi eftir að hafa veruleg áhrif á íbúa víða um heim. Miðað við núverandi hækkun mun sjárvaryfirborð hækka um allt að hálfan metra fyrir árið 2100 og munu þá borgir eins og London, Los Angeles og Bangkok fara að hluta á kaf og sama gildir um Norðurmýrina í Reykjavík.

Guterres segir að hækkun sjávarmáls muni hafa gríðarleg áhrif á líf og lífsafkomu milljarða manna. Ræktarland til matvælaframleiðslu mun dragast saman, fátækt aukast og tíðni sjúkdóma einnig. Hann sagði að eina leiðin til að höndla vanda sem í vændum er sé að þjóðir heims tækju höndum saman um að leysa hann í sameiningu.

Máli sínu til stuðnings benti aðalritarinn á nýjar upplýsingar frá Alþjóðaveðurathugunarstofnuninni sem sýna að hitastig sjávar hafi hlýnað
meira á síðustu hundrað árum en ellefu þúsund árin þar á undan. Meðal afleiðinga hlýnunar sjávar er hraðari bráðnun heimskautaíssins auk þess sem sjór þenst út við hlýnun.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.