Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Matvælastofnun og Embætti landlæknis staðfestu í byrjun febrúar að H5N1 fuglainflúensa hefði greinst í tveimur dauðum fuglum, álft í Kópavogi og rauðhöfðaönd á Tjörninni.
Matvælastofnun og Embætti landlæknis staðfestu í byrjun febrúar að H5N1 fuglainflúensa hefði greinst í tveimur dauðum fuglum, álft í Kópavogi og rauðhöfðaönd á Tjörninni.
Mynd / sá
Fréttir 16. febrúar 2026

H5N1 í gangi

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Fuglainflúensa af gerðinni H5N1 hefur nú greinst í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu og stjórnvöld vara við aukinni smithættu fyrir alifugla og fugla í haldi.

Matvælastofnun (MAST) og Embætti landlæknis staðfestu í byrjun febrúar að H5N1 hefði greinst í tveimur dauðum fuglum, rauðhöfðaönd á Tjörninni og álft í Kópavogi. Greiningarnar voru staðfestar af Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Þar með kom fram fyrsta H5N1- smit á Íslandi frá árinu 2023, en á síðustu misserum hafði aðallega greinst H5N5 í villtum fuglum og í nokkrum spendýrum, þar á meðal refum og köttum.

Óvissustig áfram í gildi

Óvissustig vegna fuglaflensu er áfram í gildi og MAST hvetur alifuglabændur til að herða sóttvarnir og draga úr snertingu við villta fugla. Fuglaeigendur eru eindregið hvattir til að fylgjast grannt með heilsufari fuglahópa og tilkynna veikindi eða óeðlilegan dauða án tafar. Almenningi er jafnframt bent á að tilkynna fund á dauðum fuglum og villtum spendýrum og forðast beina snertingu við hræ án hlífðarbúnaðar.

Sóttvarnalæknir vekur athygli á að engin merki séu um H5-stofna í fólki hér á landi og að inflúensutilfelli í mönnum sem nú sjást tengist öðrum veirustofnum. Stjórnvöld ítreka að engar vísbendingar séu um aukin afföll villtra fugla á suðvesturhorni landsins og að uppruni veirunnar sé óljós uns frekari erfðagreining hefur farið fram.

Kemur með farfuglunum

Samkvæmt MAST gæti veiran hafa borist með farfuglum nýlega eða síðastliðið haust. Erfðagreining muni skera úr um hvort veiran sé af evrópskum eða norður-amerískum uppruna. Embætti landlæknis og MAST fylgjast náið með stöðu mála, og öll tilfelli eru skráð í mælaborði stofnunarinnar.

Íslensk stjórnvöld leggja áherslu á að þótt staðfest tilfelli séu fá séu þau áminning um að veiran sé landlæg á norðlægum slóðum og geti borist með farfuglum á hverjum tíma.

Almannavarnir, MAST og sóttvarnalæknir hvetja því bændur, dýraeigendur og almenning til áframhaldandi varúðar og árétta að fyrri reynsla sýni að góðar sóttvarnir séu helsta vörn gegn smiti í alifuglum.

___________________

Í febrúar 2026 greindu bandarískir og fleiri erlendir fjölmiðlar frá fuglaflensufaraldri í Norður-Ameríku, þar sem ný tilfelli höfðu greinst bæði á stórum alifuglabúum og í smærri hópum heimaalinna alifugla. Í Colorado greindust stórar alifuglaeiningar, þar á meðal verksmiðjubú með 1,33 milljónum hænsna, með HPAI H5N1. Yfirvöld hafa hvatt bændur til hertra sóttvarna og áréttað að smit í mönnum sé sjaldgæft en stöðug vöktun nauðsynleg.

Alls hefur 71 smit í mönnum verið skráð í Bandaríkjunum frá 2024, flest tengd vinnu við alifugla eða búfé, en hætta fyrir almenning er áfram talin lítil.

Skylt efni: fuglainflúensa

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.