Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Grenivík.
Grenivík.
Mynd / HKr.
Fréttir 3. maí 2018

Grýtubakkahreppur vill uppbyggingu heilsárs ferðaþjónustu á svæðinu

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Grýtubakkahreppur hefur auglýst eftir aðilum sem áhuga hafa á að bjóða upp á heilsárs ferðaþjónustu í sveitarfélaginu. Til að styðja við heilsárs ferðaþjónustu eru einnig auglýst samhliða takmörkuð afnot af landi sveitarfélagsins til þyrluskíðamennsku frá hausti 2021.
 
Afnotarétturinn nær til jarðanna Þönglabakka, Láturs, Keflavíkur, Hóls í Þorgeirsfirði, Botns, Kaðalstaða, Gils, Kussungsstaða, Grenivíkur, Hvamms 1, en þó ekki ræktarlands þessara jarða. Einnig á sveitarfélagið jörðina Svínárnes að hálfu.
 
Hinir áhugasömu skulu skila inn ítarlegum hugmyndum um áætlanir sínar um uppbyggingu ferðaþjónustu í sveitarfélaginu og áætlaðan fjölda starfa sem kunna að verða til þar vegna þeirrar uppbyggingar. Einnig upplýsingum um reynslu og þekkingu af ferðaþjónustu og þjónustu henni tengdri auk upplýsinga um reynslu og þekkingu af þyrluskíðamennsku. Að auki áætlanir um kynningu og markaðsstarf svæðisins í heild sem valkost í ferðaþjónustu, bæði hér á landi og erlendis.
 
Þess er óskað að auk áðurnefndra upplýsinga verði eftir atvikum lögð fram gögn er varða fjármögnun verkefna og annað sem máli kann að skipta varðandi mat á því hvort þær hugmyndir sem fram verða settar séu raunhæfar og líklegt að þær gangi eftir.
 
Stefnt er að því að gefa þeim aðilum sem lýsa yfir áhuga sínum, tækifæri til þess að kynna hugmyndir sínar fyrir sveitarstjórn, áður en ákvörðun verður tekin um samstarfsaðila. Frestur til þess að skila inn upplýsingum er til 4. maí 2018. 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.