Jón Björn Blöndal segir að úti á akrinum líði honum best.
Jón Björn Blöndal segir að úti á akrinum líði honum best.
Mynd / Magnús Óli Sigurðsson
Viðtal 28. október 2026

Gríðarlega vinsæl sjálftínsla grænmetis

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Það vakti mikla athygli fyrir ári síðan þegar greint var frá því í Bændablaðinu að Jón Björn Blöndal, ungur bóndi í Bæjarsveitinni í Borgarfirði, hefði tekið upp á því að bjóða fólki að koma til sín á akurinn og tína beint upp úr honum kartöflur og gulrætur, gegn vægu gjaldi. Svo vel tókst til á síðasta ári að í sumar tók hann enn stærra land undir ræktunina og fjölgaði tegundum.

„Áhuginn fer vaxandi milli ára en ég reikna með að í ár hafi um 300 manns skráð sig og komið út á akurinn til að tína grænmeti ásamt fjölskyldum sínum, á þeim fimm sjálftínsluviðburðum sem ég hef haldið. Ég hef auglýst sjálftínsluviðburði aðra hverja helgi í haust.

Sjálftínslan virkar þannig að fólk fylgist með á Facebook-síðu minni, sem heitir Sjálftínsla Jóns Björns, og þar auglýsi ég sjálftínsluviðburði og fólk þarf að smella þar á going til að skrá sig. Ég sendi þeim sem skrá sig staðsetninguna á akrinum og fólk mætir þangað og tínir í eigin ílát eða poka.

Þegar fólk er búið að tína kemur það til mín og ég vigta uppskeruna og fólk greiðir fyrir það vægt gjald á hvert kíló. Það er heilmikið fjör og stemning í kringum sjálftínsluna en ég býð fólki upp á kaffi og kakó þegar það hefur lokið tínslunni.

Systir mín, Steinunn Bjarnveig, hefur svo selt grænmeti úr gróðurhúsinu sínu, en hún ræktar og selur tómata, gúrkur og paprikur á sumrin en grænmetið hennar hefur alltaf selst upp á viðburðunum,“ útskýrir Jón Björn. 

Sjálftínslan í Bæjarsveit hefur verið mjög farsæl.

Sjálftínslan góð helgarafþreying fyrir fjölskyldur

Markmiðið með sjálftínslunni er að hans sögn að selja grænmeti milliliðalaust en jafnframt sé sjálftínslan gott tækifæri fyrir börn að kynnast uppruna matvæla. Sjálftínslan geti verið góð helgarafþreying fyrir fjölskyldur sem ná sér í leiðinni í ódýrt og gott grænmeti.

„Sjálftínslunni er lokið þetta haustið þar sem veturinn nálgast og uppskeran að klárast. Raunar seldist upp allt sem ég ræktaði strax í annarri sjálftínslunni sem ég hélt þann 6. september, nema kartöflurnar, en þá voru 140 manns sem skráðu sig svo reikna má með að um 300 til 400 manns hafi komið út á akur að tína þann daginn þegar allt er talið.

Í ár var ég með um einn hektara undir grænmetisrækt, þó mest í kartöflum. Í fyrra var ég með mun minna af kartöflum. Ég setti niður eitt tonn af útsæði í ár en aðeins 200 kíló í fyrra. Á næsta ári ætla ég að hafa meira af gulrótum og öðrum tegundum og reyna að hafa svipað magn af öllum tegundum. Í ár ræktaði ég einnig gulrófur, rauðrófur, brokkolí, blómkál og sellerí í smáum stíl. Á næsta ári langar mig að rækta meira magn af þessum tegundum, bæði fyrir sjálftínsluna og beina sölu, ásamt fleiri tegundum eins og nípum, grænkáli og fleira. Í ár hef ég verið að selja kartöflur og gulrætur beint til mötuneyta og veitingahúsa en mig langar að bjóða þeim fleiri tegundir.

Á Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll seldi ég um 800 kíló af kartöflum og fór salan og áhuginn á sjálftínslunni langt fram úr mínum björtustu vonum.“

Grænmetisræktin og kornræktin vinna vel saman

Að sögn Jóns Björns er sáðskipti lykillinn að fallegu og heilbrigðu grænmeti. „Ég rækta grænmetið aldrei á sama staðnum tvö ár í röð. Ég er heppinn að hafa aðgang að mjög góðu ræktarlandi sem alla jafna er notað undir  kornrækt og túnrækt. Grænmetisræktin mín nýtur mikils stuðnings frá búrekstri föður míns í formi ræktunartækja og aðgengi að frjósömu ræktarlandi.“

Hann útskrifaðist í vor úr BS-námi í búvísindum og var ráðinn til starfa sem búfræðikennari í bútækni og jarðrækt við Landbúnaðarháskóla Íslands. „Að kenna er mjög krefjandi og lærdómsríkt en ég stefni þó á áframhaldandi nám og langar að fara í meistaranám í faginu mínu sem er jarðrækt og bútækni.

Jón Björn á Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll á dögunum þar sem hann seldi um 800 kíló af kartöflum. Mynd / Ástvaldur Lárusson

Ég skrifaði BS-ritgerð mína um rekstrarhagkvæmni kornræktar á Íslandi með þurrkað korn. Í síðasta Bændablaði skrifaði ég grein um niðurstöður mínar. Í stuttu máli voru niðurstöðurnar að í meðalgóðu uppskeruári er hvorki hagnaður né tap af kornræktinni miðað við forsendur verkefnisins en rekstrarumhverfi kornræktarinnar getur fljótt breyst, eins og ég útskýri í blaðagreininni. BS-verkefni mitt hjálpaði mér mikið að skilja kostnaðar- og tekjuliði í kornrækt og hvernig megi hámarka afkomuna. Kornrækt er mjög áhættusamur búrekstur og þess vegna er mikilvægt að vera með fleiri stoðir undir búrekstrinum, en grænmetisræktin og kornræktin vinna vel saman og styðja hvor aðra í formi uppskeruauka og minna plöntusjúkdómaálagi vegna sáðskipta. Á mínu búi erum við einnig með sauðfjárbúskap og lítið ferðaþjónustuhús. Mín framtíðarsýn í búrekstrinum er ávallt að reyna að hámarka gæði og uppskerumagn á hverjum hektara, bæði í kornræktinni og grænmetisræktinni. Ég hef líka mikinn áhuga á lífrænni grænmetisrækt og mögulega mun ég færa mig að hluta eða alfarið yfir í hana.“

Í framtíðinni sér Jón Björn fyrir sér búrekstur sem byggir fyrst og fremst á kornrækt og grænmetisrækt. „Sauðfjárræktin er líka mjög mikilvæg til að nýta úthagann og það ræktarland sem hentar síður til korn- og grænmetisræktar. Jarðræktin er mér mjög mikilvæg og úti á akrinum líður mér best. Mér finnst líka ákaflega gott að borða. Hreint, fallegt og bragðgott hráefni er grundvöllur vel heppnaðrar matargerðar.“

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...