Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Greitt að fullu fyrir allt að 10,47% af umframmjólk
Fréttir 16. febrúar 2026

Greitt að fullu fyrir allt að 10,47% af umframmjólk

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Útreikningum á útjöfnun ársins 2025 er lokið hjá atvinnuvegaráðuneytinu annars vegar og mjólkurafurðastöðvunum hins vegar.

Alls koma til útjöfnunar rúmlega 7,6 milljónir lítra og fá þeir kúabændur sem lögðu inn umframmjólk, sem var allt að 10,47% af greiðslumarki þeirra, hana nú greidda fullu verði, bæði hvað varðar beingreiðslur og afurðastöðvarverð.

Peningalegt uppgjör samkvæmt þessum útreikningum fer fram nú í febrúarmánuði.

Ónotað greiðslumark

Að sögn Jóhannesar Hr. Símonarsonar, framkvæmdastjóra Auðhumlu svf., samanstanda þessar 7,6 milljónir lítra annars vegar af greiðslumarki þeirra mjólkurframleiðenda sem ekki náðu að framleiða að fullu upp í greiðslumark sitt og hins vegar þeirra mjólkurframleiðenda sem hafa hætt mjólkurframleiðslu en eiga enn hluta af greiðslumarki sínu óselt í árslok.

Framkvæmd útjöfnunar fer fram samkvæmt 11. grein reglugerðar um stuðning í nautgriparækt: „Skal fyrst greitt fyrir fyrsta prósentustig sem greiðslumarkshafi framleiðir umfram eigið greiðslumark og síðan annað prósentustig og svo áfram eftir því sem ónotað greiðslumark gefur tilefni til.“

Metframleiðsla mjólkur

Heildarmagn raunverulegrar umframmjólkur, sem framleitt var umfram heildargreiðslumark, reiknast því alls um fimm milljónir lítra, en var um 2,2 milljónir lítra árið 2024.

Alls voru 156,9 milljónir lítra lagðir inn í mjólkurafurðastöðvar á síðasta ári, sem er metframleiðsla mjólkur á einu ári og rúmlega þremur milljónum lítrum meira magn en árið 2024.

Hærra útjöfnunarhlutfall undanfarin ár

Jóhannes segir að undanfarin tvö ár hafi hlutfallið sem kom til útjöfnunar á ónotuðu greiðslumarki verið nokkru meiri en áður var, eða um og yfir 16%. Það hafi væntanlega hvatt til aukinnar framleiðslu auk þess sem fóðuröflun bænda hafi gengið mjög vel síðasta sumar.

Um síðustu áramót voru 445 kúabú starfandi á Íslandi sem er um helmingsfækkun frá aldamótum. Á sama tíma hefur meðalkúabúið stækkað umtalsvert og framleiðir nú rúmlega þrefalt meira en um aldamótin, eða ríflega 330 þúsund lítra.

Skylt efni: mjólkurframleiðsla

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.