Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Dæmi eru um að byggja má upp öfluga og góða þjónustu ríkisstofnana þótt starfsstöðvar séu á fleiri en einum stað, um það vitnuðu bæði ríkisskattstjóri og forstjóri Þjóðskrár á fundi um opinber störf á landsbyggðinni og flutning þeirra frá höfuðborgarsvæði
Dæmi eru um að byggja má upp öfluga og góða þjónustu ríkisstofnana þótt starfsstöðvar séu á fleiri en einum stað, um það vitnuðu bæði ríkisskattstjóri og forstjóri Þjóðskrár á fundi um opinber störf á landsbyggðinni og flutning þeirra frá höfuðborgarsvæði
Mynd / Þórgnýr Dýrfjörð
Fréttir 28. júní 2017

Góðar fyrirmyndir til staðar en stefnu stjórnvalda skortir

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Margar vel heppnaðar fyrirmyndir eru til staðar og þekking á því hvernig standa megi að opnun og eflingu starfsstöðva opinberra stofnana af höfuðborgarsvæðinu úti á landsbyggðinni, en stefnu stjórnvalda skortir sárlega. 
 
Þetta má segja að hafi verið ein af niðurstöðum fundar sem Akureyrarstofa og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar stóðu fyrir á Akureyri nýverið, en markmið hans var að hvetja stofnanir og fyrirtæki til að skoða þau tækifæri sem felast í því að styrkja starfsstöðvar sínar vítt og breitt um landið, m.a. með því að setja upp dreifða starfsemi með sérhæfingu og þekkingu á völdum stöðum eða með því að skilgreina störf án staðsetningar. Greint er frá ráðstefnunni á vefsíðu Akureyrarbæjar.
 
Fram kom að nauðsynlegt sé að stjórnvöld taki grundvallarákvörðun um að byggja upp tvo borgarkjarna á Íslandi og að það sé góð leið til að tryggja jafnari dreifingu þjónustu og opinberra starfa á landinu og þar með byggðar.
 
Vantar skýrari stefnu
 
Guðmundur Baldvin Guðmunds­son, formaður bæjarráðs Akureyrar, ræddi augljósa kosti þess fyrir landsbyggðirnar og íbúa að fyrirtæki og stofnanir byggi upp starfsstöðvar víðar en bara þar sem markaður er stærstur og nefndi einnig að skýrari stefnu stjórnvalda um opinberar stofnanir skorti.
 
Starfsstöðvar á mörgum stöðum
 
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri og Margrét Hauksdóttir. forstjóri Þjóðskrár. sögðu frá sínum stofnunum og tóku dæmi hvernig má byggja upp öfluga og góða þjónustu þótt starfsstöðvar séu á fleiri en einum stað á landinu. 
 
Þegar embætti skattstjóra á landinu voru sameinuð undir einum hatti ríkisskattsjóra varð í raun til ný stofnun og miklar breytingar urðu m.a. með þeirri afleiðingu að störfum á starfsstöð á Akureyri fjölgaði. Starfsfólki Þjóðskrár á Akureyri hefur líka fjölgað jafnt og þétt á síðustu árum. 
Í máli beggja mátti heyra að það hvað Akureyri er öflugur þjónustukjarni, skipti miklu máli þegar lagt var af stað og ræður miklu um það hversu vel hefur gengið. 
Skúli nefndi sérstaklega að Akureyri hafi marga þætti sem borg hefur og það hafi skipt sköpum. 
 
Rafræn stjórnsýsla er forsendan
 
Fram kom hjá báðum að rafræn stjórnsýsla er forsenda þess að þjónusta og skipulag gangi snurðulaust fyrir sig. 
 
Þá nefndu þau bæði að tilvist Háskólans á Akureyri er og var grundvallaratriði í að árangur hefur náðst. Skipulag beggja stofnanana felur í sér að sérhæfð svið þeirra eru staðsett á Akureyri þannig að til verður sérþekking og teymi margra starfsmanna sem vinna að sömu verkefnum. 
 
Skúli nefndi sérstaklega að mikil tíðni flugferða milli Akureyrar og Reykjavíkur hafi verið stór þáttur í að byggja upp á Akureyri á sínum tíma og að fækkun ferða á þessari leið hafi bitnað t.a.m. á fundarhaldi á Akureyri.
 
Svavar Pálsson, sýslumaður á Norðurlandi eystra, var síðastur frummælenda. Hann brýndi fólk til dáða og sagði frá öflugri stefnu Dana í flutningi valdra stofnana frá Kaupmannahöfn. Danir hafa sett sér það markmið að 11,5% opinberra starfa verði flutt frá höfuðborgarsvæðinu. 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.