Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Góð pitsa í mestu uppáhaldi
Fólkið sem erfir landið 8. apríl 2019

Góð pitsa í mestu uppáhaldi

Símon Snorri er 13 ára skagfirskur Skaftfellingur.  Hann heldur mest upp á góða pitsu og hefur gaman af að spila tölvuleiki með vinum sínum.  
 
Nafn: Símon Snorri.
 
Aldur: 13 ára.
 
Stjörnumerki: Steingeit.
 
Búseta: Kálfafelli 1b í Fljótshverfi.
 
Skóli: Kirkjubæjarskóli á Síðu.
 
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir.
 
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur.
 
Uppáhaldsmatur: Pitsa.
 
Uppáhaldshljómsveit: Ég á enga uppáhaldshljómsveit en uppáhalds­söngvarinn minn er Eminem.
 
Uppáhaldskvikmynd: 22 Jump Street.
 
Fyrsta minning þín? Ég er ekki alveg viss en ætli það sé ekki þegar ég var að hjálpa Daníel Smára, bróður mínum, að hjóla á þríhjóli.
 
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Nei, er ekki að æfa neinar íþróttir núna í vetur. Kann pínulítið á gítar.
 
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég er ekki alveg ákveðinn í því. Ætli ég verði ekki bara stærri áður en ég ákveð það.
 
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar við bræðurnir máluðum skottið á bílnum hennar mömmu með afgangsmálningunni frá grindverkinu.
 
Hvað ætlar þú að gera skemmtilegt um páskana? Sofa út, borða páskaegg og hafa það kósí með fjölskyldunni.
 
Næst » Símon Snorri skorar á Hrafntinnu Jónsdóttur, bekkjasystur sína, að svara næst.
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.