Brúin yfir Hoffellsá.
Brúin yfir Hoffellsá.
Mynd / Vegagerdin.is
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir umferð í júní.

Gjaldtakan verður að fullu sjálfvirk og vegfarendur þurfa ekki að skrá sig eða greiða sérstaklega þegar ekið er um veginn. Myndavélar lesa skráningarnúmer ökutækja og upplýsingar eru sóttar í ökutækjaskrá. Mánaðarlega verður reikningur fyrir ferðum hvers mánaðar sendur í heimabankar. Innheimta veggjaldisins, sem á að standa undir hluta kostnaðar við framkvæmdina, rekstur og viðhald vegarins, fer fram undir merkjum Spalar ehf.

Þak á mánaðarlegar greiðslur

Stakt gjald fyrir ökutæki undir 3,5 tonnum verður 1.500 krónu, 2.100 krónur fyrir millistóra bíla frá 3,5 til 7,5 tonna og 4.500 krónur fyrir bíla yfir 7,5 tonnum. Gjaldflokkur miðast við heildarþyngd ökutækja. 

Afsláttarkjör verða fyrir litla og millistóra bíla og þak sett á mánaðarlegar greiðslur. Þannig er ekki greitt meira en 18.750 krónur á mánuði fyrir minnstu bílana og ekki meira en 26.250 krónur fyrir millistóra bíla. Hámarksgjaldinu er náð við 22 ferðir á mánuði. Ekkert mánaðarlegt hámark verður á greiðslum fyrir ökutæki yfir 7,5 tonnum.

Styttri ferðatími

Með framkvæmdinni styttist Hringvegurinn um 12 kílómetra og leiðin frá Reykjavík til Hornafjarðar um rúma 14 km. Áætlað er að ferðatími styttist um 15 til 20 mínútur. Lagðir voru tæpir 19 km af nýjum Hringvegi, 9 km af öðrum vegum og byggðar fjórar tvíbreiðar brýr, sem eru samtals 468 m langar. Einnig var gerður áningarstaður og hringtorg við Hafnarveg.

Verkið er fyrsta samvinnuverkefnið sem Vegagerðin stendur að. Samkvæmt lögum um samvinnuverkefni er gert ráð fyrir að veggjöld standi straum af að lágmarki 50% af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri og þróun samgöngumannvirkisins. Heildarkostnaður við framkvæmdina í Hornafirði er áætlaður rúmlega 10 milljarðar króna.

Nánari upplýsingar má finna á spolur.is.

Gjaldskrá vegna veggjalda á Hringvegi um Hornafjörð

Ökutæki undir 3,5 tonn
Stök ferð
kr. á ferð
1.500
2-5 ferðir í mánuði
kr. á ferð
950
6-22 ferðir í mánuði
kr. á ferð
750
Hámarksgjald á ökutæki
kr. á mánuði
18.750
Ökutæki 3,5 til 7,5 tonn
Stök ferð
kr. á ferð
2.100
2-5 ferðir í mánuði
kr. á ferð
1.330
6-22 ferðir í mánuði
kr. á ferð
1.050
Hámarksgjald á ökutæki
kr. á mánuði
26.250
Ökutæki yfir 7,5 tonn
Stök ferð
kr. á ferð
4.500
*Gert er ráð fyrir að gjaldskráin verði endurskoðuð reglulega.
Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...