Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Garnaveiki greind í Húnavatnshreppi
Fréttir 8. janúar 2020

Garnaveiki greind í Húnavatnshreppi

Höfundur: Ritstjórn

Matvælastofnun hefur tilkynnt um að rétt fyrir jól hafi garnaveiki verið staðfest í kind á bænum Reykjum í Húnavatnshreppi. Þar segir einnig að garnaveiki hafi greinst í sauðfé á tveimur öðrum bæjum í Húna- og Skagahólfi síðastliðin 10 ár.

„Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur í jórturdýrum, en með bólusetningu er hægt að verja sauðfé og geitur fyrir sjúkdómnum og halda smitálagi í lágmarki. Á bæjum sem garnaveiki greinist á gilda ýmsar takmarkanir sem lúta að því að hindra smitdreifingu.

Tilfellið uppgötvaðist eftir að bóndi, í samráði við dýralækni, lét héraðsdýralækni Matvælastofnunar vita. Kindin, sem var rúmlega 5 vetra, sýndi einkenni sjúkdómsins og var aflífuð. Sýni voru tekin og send til greiningar á Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum. Þau reyndust jákvæð m.t.t. garnaveiki. Einnig voru sýni tekin til rannsóknar á riðuveiki en þau voru neikvæð.

Orsök sjúkdómsins er lífseig baktería af berklaflokki (Mycobacterium paratuberculosis). Helstu einkenni hennar eru hægfara vanþrif, stundum með skituköstum. Í þeim hjörðum sem veikin kemur upp getur einnig verið þó nokkuð um „heilbrigða smitbera“ þ.e.a.s kindur sem hafa tekið smit en sýna ekki enn einkenni og eru þó að skilja út mikið af smitefninu. Meðgöngutími í sauðfé og geitum er 1-2 ár eða lengri. Garnaveikibakterían veldur bólgum í mjógörn og oft einnig í langa, ristli og lifur. Sýklarnir berast út með saurnum og geta lifað í 1- 1 ½ ár í óhreinindum og pollum umhverfis gripahús, við afréttargirðingar, í sláturúrgangi og í líffærum skepna sem drepast út um haga. Sýking verður um munn með saurmenguðu fóðri og vatni.

Um garnaveiki og varnir gegn henni gildir reglugerð nr. 911/2011. Markmið hennar er að stuðla að útrýmingu garnaveikinnar. Í reglugerðinni eru m.a. ákvæði um þær takmarkanir sem gilda um garnaveikibæi. Þar á meðal er að óheimilt er að láta til lífs sauðfé, geitur eða nautgripi í 10 ár frá síðustu greiningu á garnaveiki eða vanrækslu á bólusetningu. Mikilvægt er að huga að því að smit getur borist með landbúnaðartækjum, heyi, áburði o.fl. en flutningur á öllu slíku frá garnaveikibæjum er einnig óheimill. Reglugerðin kveður einnig á um skyldu til bólusetningar sauðfjár og geita á tilteknum svæðum á landinu. Sinni eigandi ekki skyldu sinni til bólusetningar getur Matvælastofnun fyrirskipað bólusetningu á kostnað eiganda. Matvælastofnun heldur skrá yfir garnaveikibæi sem aðgengilegur er á vef stofnunarinnar.

Matvælastofnun vill minna á mikilvægi þess að bólusetja ásetningslömb eins fljótt og auðið er sem og aðkeypt lömb. Þessi lömb eru alveg óvarin þar til þau fá bólusetninguna og geta því smitast í millitíðinni, sé smitálag í umhverfinu mikið,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.