Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Garðyrkjunám í uppnámi
Lesendarýni 31. október 2019

Garðyrkjunám í uppnámi

Höfundur: Vernharður Gunnarsson

Í Dagskránni 9. október sl. og Bændablaðinu 10. október sl. birti rektor Landbúnaðarháskóla Íslands greinar um nýja stefnu LbhÍ, sem samþykkt var í júní síðastliðnum. Í greinum þessum er rektor tíðrætt um hve mikil sátt og ánægja sé með þessa nýju stefnu.  Staðreyndin er hins vegar allt önnur. Þessi stefna var mótuð án nokkurs samráðs við atvinnulíf garðyrkjunnar, helstu hagsmunaaðila garðyrkju­námsins og er framganga rektors gagn­vart þeim, sem láta sér hag garðyrkjunáms á Íslandi varða, algjörlega ólíðandi.

Garðyrkjuskólann að Reykjum í Ölfusi, rétt ofan við Hveragerði, þekkja flestir landsmenn. Hann fagnaði 80 ára starfsafmæli á þessu ári. Þar hefur farið fram öflugt garðyrkjunám, sem hefur verið grundvöllur að þeirri fjölbreyttu og öflugu garðyrkju, sem við búum að í dag á Íslandi. Löng hefð er fyrir nánu samstarfi skólans við atvinnulífið en nú virðist því miður stefna í breytingu þar á.

Námið er starfsmenntanám á framhaldsskólastigi, sem felur í sér að nemendum gefst tækifæri til að afla sér verklegrar færni og þekkingu á mismunandi starfs­vettvangi sem tengist þeirra námi.

Sumardagurinn fyrsti hefur alltaf verið haldinn hátíðlegur á Reykjum. Þúsundir landsmanna heimsækja skólann þann dag þar sem nemendur kynna nám sitt og atvinnulífið störf í faginu.  Ráðamenn þjóðarinnar, ráðherrar, alþingismenn og forsetar hafa þá heimsótt skólann og mært þá starfsemi sem þar fer fram. Garðyrkjuskólinn hefur því notið mikillar velvildar í samfélaginu.

Fyrir 15 árum var Garðyrkju­skólinn á Reykjum sameinaður inn í LbhÍ. Ekki var sátt innan garðyrkjunnar um þá aðgerð.  Allar götur síðan hefur skólastarfsemi á Reykjum átt undir högg að sækja og ítrekað komið fram hugmyndir hjá stjórnendum skólans að leggja niður skólahald að Reykjum í því formi sem það er nú. 

Eðlilegu viðhaldi bygginga hefur verið ábótavant, þar til fyrir um tveimur árum þegar þrýstingur frá garðyrkjubændum og öðrum velunnurum garðyrkju­námsins varð til þess að stjórnvöld lögðu fram fjármagn til endurbóta á húsnæði skólans. Starfsfólk skólans og kennarar hafa sýnt að hægt er að halda uppi öflugu og metnaðarfullu skólastarfi, þrátt fyrir mótlæti og erfið húsnæðis­mál.

Núverandi rektor hefur lagt fram og fengið samþykkt nýtt skipurit þar sem ákveðið hefur verið að dreifa garðyrkjunáminu á ýmsar deildir innan háskólans, ef þær kæra sig um að taka við því. Jafnframt hefur rektor unnið að breytingum á lagalegri stöðu garðyrkjunámsins, úr starfsmenntanámi í aðfara­nám háskólanáms.  Skrúðgarðyrkju­námið, sem er löggilt iðngrein, er í mikilli tilvistarkreppu ef þetta verður að veruleika. Fagaðilar innan garðyrkjunnar og aðrir velunnarar skólans hafa barist gegn þessum breytingum, í ljósi mikilvægis öflugs starfs­mennta­náms fyrir atvinnulíf garð­yrkjunnar. Þessi áform rektors koll­varpa garðyrkjunámi á Íslandi eins og það er í dag. 

Margítrekuðum varnaðarorðum hagsmuna­aðila og kröfum þeirra um að fá að koma að ákvarðana­töku varðandi garðyrkjunámið, hefur ekki verið sinnt. Framganga rektors hefur valdið trúnaðarbresti milli LbhÍ og garðyrkjunnar í landinu. 

Ef fer sem horfir, sjá velunnarar skólans og fagaðilar ekki annan kost en að vinna að því að Garðyrkju­­skólinn að Reykjum losi sig úr faðmlagi LbhÍ og verði aftur sjálf­stæður skóli.

Vernharður Gunnarsson
formaður Félags garðplöntuframleiðenda

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.