Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Lóungi. Pedro segir hreiður hafa spillst og ungar króknað.
Lóungi. Pedro segir hreiður hafa spillst og ungar króknað.
Mynd / Aðsendar
Fréttir 20. júní 2024

Fuglum fækkar vegna óveðurs

Höfundur: Bryndís Sigurðardóttir

Samkvæmt fuglatalningu varð algjört hrun í fjölda fugla á Norðausturlandi þegar óveður skall á í síðustu viku.

Pedro Rodrigues.

Pedro Rodrigues, framkvæmdastjóri Rannsóknastöðvarinnar Rifs á Melrakkasléttu, segir að umtalsverð fækkun fugla á svæðinu sé staðreynd.

„Það er allt mögulegt sem gerist í svona áfalli. Hreiður spillast, ungar krókna og fuglar flýja af staðnum og geta jafnvel komið sér fyrir á öðrum svæðum,“ segir Pedro en bætir við að fuglapör í góðu ástandi geti haldið utan um hópinn sinn og komið þeim upp, jafnvel í svona veðri. Þó áfallið sé mikið núna þurfi það ekki að hafa varanleg áhrif. Ef næsta vor verður skaplegt geti fuglalífið náð sér alveg á strik aftur. En ítrekuð hríðarveður ár eftir ár geti haft varanleg skaðleg áhrif.

„Þessir öfgar í veðurfari sem við erum að upplifa um allan heim eru líklegir til að halda áfram og þá auðvitað má búast við meiri hörmungum,“ segir hann.

Pedro, sem er frá Azoreyjum, hefur starfað hjá Rannsóknastöðinni Rifi í þrjú ár. Hann segist afar ánægður á Raufarhöfn, samfélagið sé gott og umhverfið fallegt. „Konan mín býr í Njarðvík en hún elskar líka Raufarhöfn og kemur eins oft og hún getur. Við erum búin að kaupa okkur hús hér á Raufarhöfn og njótum þess mjög að vera hér á þessum dásamlega stað.“

Rannsóknastöðin Rif átti tíu ára afmæli í maí á þessu ári. Hún var fyrst rekin sem sjálfstæð stofnun en er nú hluti af Náttúrustofu Norðurlands. Stöðinni er ætlað að efla rannsóknarstarf á Melrakkasléttu en þar er kjörlendi rannsókna á vistkerfi norðurslóða og áhrifa loftslags á vistkerfið.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.