Snæþór segir að bjargdúfum hafi fjölgað mikið á síðustu áratugum en alls sé þó óvíst hvort þær bjargdúfur sem við sjáum villtar í dag séu afkomendur húsdúfna, sem er þá ræktað afbrigði bjargdúfna.
Snæþór segir að bjargdúfum hafi fjölgað mikið á síðustu áratugum en alls sé þó óvíst hvort þær bjargdúfur sem við sjáum villtar í dag séu afkomendur húsdúfna, sem er þá ræktað afbrigði bjargdúfna.
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið þar sem óskað er eftir svörum varðandi nýlega leyfisveitingu ráðuneytisins sem heimilaði skotveiðar á bjargdúfum í Vestmannaeyjum.

Fuglavernd lýsir yfir miklum áhyggjum vegna málsins enda sýnist stjórn félagsins meint tjón vera óljóst og að það hafi ekki verið metið á fullnægjandi hátt áður en ráðist var í þær róttæku aðgerðir að drepa bjargdúfur. „Einnig virðist ekki hafa verið sýnt fram á að aðrar leiðir til að koma í veg fyrir tjón hafi verið fullreyndar, þar á meðal annars að taka alveg fyrir fóðurgjafir til dúfnanna, sem m.a. var fjallað um í umsögn Náttúrufræðistofnunar frá 3. september 2025,” segir m.a. í tilkynningu frá stjórninni.

Snæþór Aðalsteinsson, sem er varaformaður stjórnar Fuglaverndar Íslands. Ljósmynd/aðsend

Snæþór Aðalsteinsson er varaformaður Fuglaverndar „Samkvæmt núgildandi lögum eru allir villtir fuglar í grunninn friðaðir nema annað sé tekið fram í lögunum. Ráðherra getur þó veitt tímabundið leyfi til veiða á friðuðum tegundum í því skyni að koma í veg fyrir tjón. Slíkt leyfi var á endanum veitt til Vestmannaeyjabæjar til að bregðast við meintu tjóni af völdum bjargdúfna,“ segir Snæþór.

Forsendur mjög óljósar

Snæþór segir ástæðuna fyrir því að Fuglavernd geri athugasemdir við leyfisveitinguna til þessara skotveiða vera fyrst og fremst vegna þess að félaginu finnist allar forsendur fyrir henni vera afar óljósar. „Að mati Fuglaverndar ætti dráp vegna meints tjóns á innlendum tegundum að vera neyðarúrræði sem eigi aðeins að koma til álita í afmörkuðum undantekningartilfellum, þegar tjónið hefur verið vel skilgreint og metið með faglegum hætti og sýnt fram á að önnur úrræði hafi ekki dugað", segir Snæþór.

500 dúfur í hópi

En hvað er svona sérstakt við bjargdúfurnar og er mikið um þær í Vestmannaeyjum? „Það er svo sem ekkert sérstakt við þessar bjargdúfur sem fær okkur til að gera athugasemdir við þessar veiðar. Okkur finnst einfaldlega að ströng skilyrði ættu að vera uppfyllt áður en slíkar undanþágur eru veittar til veiða á friðuðum tegundum. Aftur á móti er staða bjargdúfna í íslenskri fuglafánu vissulega svolítið sérstök þar sem afar lítið er vitað um uppruna þeirra og stofnstærð, sem er mjög bagalegt. Þeim hefur fjölgað mikið á síðustu áratugum en alls er óvíst hvort þær bjargdúfur sem við sjáum villtar í dag séu afkomendur húsdúfna, sem hafa lagst út eða villtra bjargdúfna sem numið hafa hér land af sjálfsdáðum, en líklega er þetta einhver blanda. Stofnstærðin í Vestmannaeyjum er einnig óþekkt, en ég veit þó til þess að starfsmaður Náttúrufræðistofnunar sá þar um 500 fugla í einum hóp svo líklega eru þetta einhver hundruð,“ segir Snæþór.

Leyfisveitingin í endurskoðun

Ráðuneytið hefur nú svarað fyrirspurn Fuglaverndar en Snæþór segist ekki sjá að hún hafi haft nein bein áhrif á framgang þessa máls. „Aftur á móti er þessi lyfisveiting nú í endurskoðun hjá ráðuneytinu en ástæða þess er fyrst og fremst að framkvæmdir veiðanna fóru ekki að öllu leyti fram sem skyldi, t.d. mátti sjá særðar dúfur, dúfnahræ og skothylki á víðavangi ef marka má fréttaflutning af málinu. Auk þess virðast aðgerðirnar ekki hafa skilað tilætluðum árangri þegar kemur að því að draga úr hópamyndun dúfnanna á svæðunum sem um ræðir,“ segir Snæþór.

Ónæði og óþrifnaður

Snæþór segir að samkvæmt svörum ráðuneytisins virðist meint tjón fyrst og fremst snúa að ónæði, óþrifnaði og mögulegri sýkingarhættu. „Miðað við svar ráðuneytisins sýnist mér að þetta tjón hafi þó ekki verið fyllilega metið, en slíkt mat er ein grundvallarforsenda þess að hægt sé að meta árangur aðgerða sem þessara. Einnig er enn óljóst hvort tekist hefur að koma í veg fyrir það að dúfur séu fóðraðar eða komist í annað æti, en það ætti að vera fyrsta skref til að sporna við fjölgun dúfna í bænum. Að lokum má nefna að nábýli við villta fugla getur vissulega í einhverjum tilvikum leitt af sér ákveðin óþægindi án þess þó að það réttlæti alltaf aðgerðir sem hafa neikvæð áhrif á fuglana“, segir Snærþór að endingu.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...