Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Áhyggjur eru af því að nautakjöt sýkt af fuglaflensu hafi sloppið fram hjá eftirlitskerfi stjórnvalda í Bandaríkjunum.
Áhyggjur eru af því að nautakjöt sýkt af fuglaflensu hafi sloppið fram hjá eftirlitskerfi stjórnvalda í Bandaríkjunum.
Mynd / U.S.D.A. - Flickr
Utan úr heimi 10. júní 2024

Fuglaflensuvírus í vöðva nautgrips

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Kjöt úr kú sem var slátrað eftir að hafa sýkst af fuglaflensu reyndist mengað af veirunni.

Mjólkurkýrin var meðal gripa sem voru skornir niður eftir að hafa greinst með H5N1 fuglaflensuvírusinn. Samkvæmt opinberum tölum hefur vírusinn greinst í hjörðum 58 kúabúa sem framleiða mjólk í níu ríkjum. Kjöti sýktra gripa er fargað og leggur landbúnaðarráðuneytið í Bandaríkjunum áherslu á að matvælakeðjan sé örugg. Sóttin hefur ekki greinst á búum sem sérhæfa sig í framleiðslu nautakjöts. The New York Times greinir frá.

Fullnægjandi matreiðsla nauðsynleg

Hins vegar vekur þetta áhyggjur af því að smitað kjöt geti ratað í verslanir, sem geti hugsanlega haft í för með sér sýkingarhættu fyrir menn. Fulltrúi hjá neytendasamtökunum Consumer Reports telur áhættuna ekki mikla að svo stöddu. Vilji fólk fullvissa sig um öryggi matvælanna þurfi það að hita kjötið almennilega þegar það er matreitt.

Tilraunir styðji við þær fullyrðingar að viðeigandi eldun drepi smitefni vírussins í kjöti. Í rannsókn landbúnaðarstofnunar Bandaríkjanna var miklu smitefni H5N1 blandað við hamborgara. Engin smitefni fundust þegar kjötið var steikt að 71 °C, sem samsvarar vel elduðum borgara, eða þegar kjötið var látið ná 63 °C, sem samsvarar meðalsteiktum borgara. Hins vegar fannst smitefni í skertu magni í lítið steiktum hamborgurum, eða þar sem kjötið náði 49 °C.

Hefur ekki fundist í búðum

Samkvæmt landbúnaðarstofnuninni virkuðu ferlar eins og ætlað var í ljósi þess að starfsmenn sjúkdómsgreindu kúna og sáu til þess að kjöti hennar var fargað. Hins vegar hefur verið bent á að fundist hafi sýktar kýr sem sýndu engin einkenni og því hugsanlegt að ekki hafi tekist að koma í veg fyrir að veikir gripir færu í sláturhús til matvælaframleiðslu. Landbúnaðarstofnunin hefur ekki fundið vírusinn við stikkprufur á kjöti í verslunum.

Þeirri spurningu hvort menn geti sýkst af fuglaflensu við neyslu á sýktu kjöti hefur ekki verið svarað. Nýleg rannsókn sýndi hins vegar fram á að mýs sem drukku ógerilsneydda mjólk með smitefninu urðu veikar. Þá hafa fjósakettir einnig sýkst eftir að hafa drukkið mjólk úr kúm með fuglaflensu.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.