Fráleitar hugmyndir um einkavæðingu RARIK og Landsnets
Skoðun 22. maí 2026

Fráleitar hugmyndir um einkavæðingu RARIK og Landsnets

Höfundur: Jóhann Páll Jóhannsson
Jóhann Páll Jóhansson.

Upp á síðkastið hefur borið nokkuð á umræðu um einkavæðingu orkufyrirtækja. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur sett slíkar hugmyndir á dagskrá með tillögum um að ríkið selji 40% hlut í Landsneti og 40% hlut í RARIK. Núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins talaði jafnframt fyrir því á síðasta kjörtímabili að ráðist yrði í sölu á stórum hlut í Landsvirkjun til einkaaðila. Vegna þessarar umræðu er fullt tilefni til að hnykkja á nokkrum atriðum.

Landsnet er ekki hefðbundið fyrirtæki á samkeppnismarkaði heldur grunninnviðafyrirtæki í náttúrulegri einokunarstöðu. Það er burðarás raforkukerfisins á Íslandi sem við höfum treyst fyrir uppbyggingu samfélagslegra innviða sem eru forsenda búsetu, atvinnuuppbyggingar og raforkuöryggis um allt land. Fram undan er tímabil gríðarlegra fjárfestinga í flutningskerfi raforku. Einkavæðing og stífari kröfur um skjótfenginn arð munu óhjákvæmilega leiða til stórfelldra gjaldahækkana á notendur um allt land.

Sömu sjónarmið gilda um RARIK, fyrirtæki sem á rætur í farsælum ákvörðunum fyrri kynslóða um að rafvæða sveitir landsins. Dreifikerfi RARIK nær til Vestur-, Norður-, Austur- og Suðurlands og 50 þéttbýliskjarna víðsvegar um landið. Fyrirtækið veitir grundvallarþjónustu í umhverfi sem markast af strjálbýli, erfiðum rekstrarskilyrðum og augljósum markaðsbrestum. RARIK hefur gjarnan haldið aftur af gjaldskrárhækkunum í dreifbýli á samfélagslegum forsendum og alla jafna ekki fullnýtt tekjuheimildir sínar. Það er erfitt að ímynda sér að þetta yrði áfram raunin með innreið Jóhann Páll Jóhannsson. einkafjárfesta og stífari kröfum um arðsemi.

Líklegasta niðurstaðan af einkavæðingu RARIK er aukinn orkukostnaður íbúa í þeim tugum sveitarfélaga sem njóta þjónustu fyrirtækisins. Ef markmið okkar er byggðajöfnuður, þjónustuskuldbinding á dreifbýlum svæðum og hófleg gjaldskrá er opinbert eignarhald skynsamlegasti kosturinn.

Sala á hlutum ríkisins í Landsvirkjun er líka afspyrnuvond hugmynd. Fyrirtækið er í markaðsráðandi stöðu og í raun með einokun á stýranlegu afli í raforkukerfinu. Það er grundvallarkrafa að arðurinn sem slík aðstaða skapar renni til almennings. Fyrirséð er að arðsemi Landsvirkjunar muni aukast töluvert á næstu árum eftir því sem stórar virkjanir verða fullafskrifaðar. Að selja eign á slíkum tímapunkti jafngildir því að gefa frá sér framtíðartekjur fyrir skammtímagróða. Slíkt væri ábyrgðarleysi gagnvart samfélaginu og komandi kynslóðum.

Raforka er ekki venjuleg vara. Hún er forsenda heimilishalds, atvinnulífs og uppbyggingar samfélagsins. Einkaaðilar gegna mikilvægu hlutverki í raforkukerfinu okkar og munu gera það áfram, en einkavæðing á fyrirtækjum í markaðsráðandi stöðu eða náttúrulegri einokunarstöðu er uppskrift að hagsmunaárekstrum, hærra verði og verri þjónustu. Það er gæfa Íslands að við höfum byggt upp orkukerfi í þágu samfélagsins alls. Leyfum engum að eyðileggja þessa sérstöðu okkar.

Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Skylt efni: raforkumál | raforka

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.