Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 12 ára.
Kalkúnn í brúnni sósu með sultu og kartöflum besti maturinn
Fólkið sem erfir landið 9. október 2014

Kalkúnn í brúnni sósu með sultu og kartöflum besti maturinn

Arna Rún sem býr í Breiðholti er átta ára og henni finnst hestar og hundar skemmtilegustu dýrin. Fyrsta minning hennar er þegar frænka hennar átti að bíta í tærnar á mömmu hennar. 

Nafn: Arna Rún Þórðardóttir.
Aldur: 8 ára og á afmæli í janúar.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: Reykjavík.
Skóli: Breiðholtsskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Skrifa og búa til sögur, smíði og að lesa skemmtilegar bækur þá aðallega um hesta.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hestur og eiginlega hundur líka.
Uppáhaldsmatur: Kalkúnn í brúnni sósu með sultu og kartöflum.
Uppáhaldshljómsveit: Adele og Páll Óskar.
Uppáhaldskvikmynd: 101 Dalmatíuhundar og allar myndirnar með Alvin og íkornarnir.
Fyrsta minning þín? Að vera í sumarbústað með frænku minni, mömmu og pabba og hlaupa um með brúsann sem frænka mín átti og bíta í tærnar á henni.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfði sund seinasta vetur og ég hef líka æft fimleika. Eftir áramót þá ætla ég að æfa fimleika, klifur í Klifurhúsinu eða skauta, ekki alveg búin að ákveða hvað. Ég spila ekki á neitt hljóðfæri.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Hestatemjari og dýralæknir.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Hef ekki gert neitt klikkað enn þá en langar að prófa fallhlífastökk.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Taka til og vera í fýlu.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar?  Ég fór á reiðnámskeið og á skauta.

Margrét Þóra
Fólkið sem erfir landið 7. október 2026

Margrét Þóra

Nafn: Margrét Þóra Friðriksdóttir Líndal.

Arndís Inga
Fólkið sem erfir landið 23. september 2026

Arndís Inga

Nafn: Arndís Inga Jakobsdóttir.

Ari
Fólkið sem erfir landið 9. september 2026

Ari

Nafn: Ari Jakobsson.

Brynjar Leó
Fólkið sem erfir landið 26. ágúst 2026

Brynjar Leó

Nafn: Brynjar Leó Erlingsson.

Dagur Kári
Fólkið sem erfir landið 12. ágúst 2026

Dagur Kári

Nafn: Dagur Kári Sigurðsson.

Apríl Emma
Fólkið sem erfir landið 8. júlí 2026

Apríl Emma

Nafn: Apríl Emma Ívarsdóttir.

Rúnar Örn
Fólkið sem erfir landið 23. júní 2026

Rúnar Örn

Nafn: Rúnar Örn Andrason.

Birkir Þór
Fólkið sem erfir landið 9. júní 2026

Birkir Þór

Nafn: Birkir Þór Andrason.