Byggðastofnun hefur það hlutverk að efla byggð og atvinnulíf á landsbyggðinni með áherslu á að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og búsetu.
Byggðastofnun hefur það hlutverk að efla byggð og atvinnulíf á landsbyggðinni með áherslu á að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og búsetu.
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákveðið að leggja meiri fjármuni til verkefnisins Brothættar byggðir, sem gerir það að verkum að hægt verður að bæta í starfsemina.

Aðspurðir segja sérfræðingar á þróunarsviði stofnunarinnar að helst megi nefna verkefnastjóra sem nýkomnir eru til starfa í tveimur byggðarlögum og í því þriðja, Kaldrananeshreppi, mun nýr verkefnastjóri hefja störf nú í byrjun september. Einnig sé undirbúningur að íbúaþingi á Tálknafirði hafinn, en það verður haldið í byrjun október.

Nýráðnir verkefnastjórar taka við keflinu

Í Reykhólahreppi hóf Guðmundur Konráðsson störf um miðjan mánuð sem verkefnastjóri, tekur þar við góðu búi eftir Emblu Dögg Bachmann, en verkefnið í Reykhólahreppi er í fullum gangi og fjöldi frumkvæðisverkefna yfirstandandi.

Í Kaldrananeshreppi mun Ingibjörg Benediktsdóttir hefja störf sem verkefnastjóri í byrjun september nk. Hún tekur sömuleiðis við góðu búi eftir Valgeir J. Guðmundsson og í Kaldrananeshreppi er einnig unnið ötullega að fjölmörgum frumkvæðisverkefnum.

Að lokum, á Tálknafirði hefur verkefnisstjórn Brothættra byggða tekið til starfa og sömuleiðis nýráðinn verkefnastjóri, Bergdís Þrastardóttir. Undirbúningur er hafinn vegna íbúaþings sem haldið verður á Tálknafirði í byrjun október, nánar tiltekið 2.–3. október.

Þess má geta að allir nefndir verkefnastjórar eru starfsmenn Vestfjarðastofu.

Styrkumsóknir Tækniþróunarsjóðs og Sóknarsjóðs

Á vefsíðu Byggðastofnunar kemur fram að Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í þrjá styrktarflokka: Sprota (allt að 24 m.kr.), Vöxt (allt að 60 m.kr.) og Markað (10-20 m.kr.). Sjóðurinn styður við nýsköpun í nánu samstarfi við Byggðastofnun og landshlutasamtökin. Umsóknarfrestur er til 15. september kl. 15:00 á vef Rannís.

Byggðastofnun auglýsir jafnframt eftir umsóknum í Sóknarsjóð fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík. Eftirstöðvum sjóðsins verður úthlutað til rekstraraðila sem voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023, eru með undir 250 m.kr. veltu og a.m.k. einn á launaskrá. Styrkirnir eru ætlaðir til tækjakaupa eða rekstrarbreytinga. Umsóknarfrestur er til 10. september kl. 16:00 í umsóknargátt Byggðastofnunar og því ekki seinna vænna en að athuga þetta nú allt sem fyrst.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...