Kjalvegur.
Kjalvegur.
Mynd / HKr.
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ef frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra nær fram að ganga. Frumvarpið er til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda.

Frumvarpsdrögin fela í sér margháttaðar umbætur á náttúruverndarlögum og lúta meðal annars að uppbyggingu innviða, landtöku farþega úr skemmtiferða- og leiðangursskipum á friðlýstum svæðum og skýrari heimildum til friðlýsingar og friðunar í hafi. Þar eru jafnframt lagðar til breytingar er snúa að úrræðum stjórnvalda til viðbragða við ólögmætum utanvegaakstri.

„Skussarnir“ sviptir ökutæki sínu

Síðasta sumar voru erlendir ferðamenn staðnir að grófum og ítrekuðum utanvegaakstri og hlutu fyrir það sektir, þegar lögregla náði af þeim tali. Í kjölfarið lýsti Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, því yfir að taka þyrfti fastar á slíkum brotum. „Ólögmætur utanvegaakstur er óþolandi og á ekki að líðast. Þess vegna þurfa stjórnvöld að hafa raunhæf úrræði til þess að taka fastar á skussunum og senda þeim reikninginn vegna tjónsins sem þeir valda. Og þegar ökumenn hlýða ekki fyrirmælum verður lögregla að geta haldlagt ökutæki strax og komið þannig í veg fyrir frekari brot. Um þetta snúast lagabreytingarnar,“ segir Jóhann Páll.

Með nýju frumvarpi yrði Náttúruverndarstofnun heimilt að annast nauðsynlegar úrbætur á verulegum nátturuspjöllum vegna utanvegaaksturs og krefja hann sem veldur spjöllunum um kostnað við úrbæturnar. Jafnframt er lagt til að lögregla fái heimild til haldleggja bílinn sem olli skemmdunum tímabundið. Þá verði viðurlög vegna brota sem valda alvarlegum náttúruspjöllum hert og samræmd viðurlögum samkvæmt öðrum lögum á þessu sviði.

Skylt efni: utanvegaakstur

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...