Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Osti pakkað hjá Mjólkursamsölunni.
Osti pakkað hjá Mjólkursamsölunni.
Mynd / ál
Fréttir 23. febrúar 2026

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Samkvæmt nýrri rannsókn við Háskólann í Lundi er hægt að tengja neyslu á feitum osti við minni líkur á að eldri einstaklingar þrói með sér heilabilun.

Emily Sonestedt, lektor í faraldsfræði og samstarfsmenn hennar við Háskólann í Lundi, vildu kanna hvort neysla á feitum osti gæti minnkað líkurnar á heilabilun. Fylgst var með tæplega 28 þúsund einstaklingum yfir 25 ára tímabil, en meðalaldur þátttakenda við upphaf rannsóknarinnar var 58 ár. Meðan á rannsókninni stóð þróuðu 3.208 þátttakendur með sér heilabilun.

Eftir að leiðrétt hafði verið fyrir lífsstílsþáttum, eins og hreyfingu, matarvenjum, reykingum og áfengisneyslu, sáu rannsakendurnir að þeir sem átu að jafnaði 50 grömm af feitum osti á degi hverjum voru 13 prósent ólíklegri til að þróa með sér heilabilun, samanborið við hópinn sem át minna en 15 grömm á dag. Á gögnunum mátti jafnframt sjá neikvæða fylgni milli neyslu á rjóma og að þróa með sér heilabilun. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna ekki sömu verndandi áhrif á heilsu heilans af neyslu mjólkurvara með lágt fituinnihald.

Þátttakendur svöruðu spurningum um matarvenjur og fengust upplýsingar um heilabilun úr sjúkraskrám. Fjórðungur þátttakenda borðuðu að jafnaði meira en 50 grömm af feitum osti á dag, en þá er átt við ost með meira en 20 prósent fitu. Í frétt á heimasíðu Háskólans í Lundi segir Emily Sonestedt að þegar horft er til tiltekinna tegunda af heilabilun þá eru 29 prósent minni líkur á æðaheilabilun hjá hópnum sem borðaði meira af feitum osti. Eins minnkaði neysla á feitum osti verulega líkurnar á Alzheimer-sjúkdómi hjá þeim sem báru ekki APOE e4 genabreytinguna sem er áhættuþáttur fyrir Alzheimer.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.